Biblíulestur 10. janúar – Slm 112.1–10
Hallelúja.
Sæll er sá sem óttast Drottin
og gleðst yfir boðum hans.
Niðjar hans verða voldugir í landinu,
ætt réttvísra mun blessun hljóta.
Nægtir og auðæfi eru í húsi hans
og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
Réttvísum skín ljós í myrkri,
mildum, miskunnsömum og réttlátum.
Vel farnast þeim sem lánar fúslega
og annast málefni sín af réttvísi
því að hann mun aldrei haggast.
Minning hins réttláta er ævarandi,
hann þarf ekki að kvíða ótíðindum,
hjarta hans er stöðugt, hann treystir Drottni.
Hjarta hans er óhult, hann óttast ekki;
skjótt fær hann að líta fall óvina sinna.
Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum,
réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu,
horn hans er hafið upp með sæmd.
Hinn óguðlegi sér það og honum gremst,
hann gnístir tönnum og ferst.
Óskir óguðlegra rætast ekki.
Biblíulestur 2. maí – Matt 13.1–23
Sama dag gekk Jesús að heiman og settist við vatnið. Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum að hann varð að stíga í bát og sitja þar. En allt fólkið stóð [...]
Biblíulestur 1. maí – Jóh 10.11–16
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar [...]
Biblíulestur 30. apríl – Matt 12.33–50
Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist tréð. Þér nöðrukyn, hvernig getið þér, sem eruð vond, talað gott? Af gnægð [...]
Biblíulestur 29. apríl – Matt 12.22–32
Þá var maður færður til Jesú haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann svo að hinn mállausi gat talað og séð. Allt fólkið varð furðu lostið og sagði: [...]
Biblíulestur 28. apríl – Matt 12.1–21
Um þessar mundir fór Jesús um sáðlönd á hvíldardegi. Lærisveinar hans kenndu hungurs og tóku að tína kornöx og eta. Þegar farísear sáu það sögðu þeir við hann: „Lít á, [...]
Biblíulestur 27. apríl – Lúk 6.37–49
Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. Gefið og yður mun gefið verða. Góður [...]