Biblíulestur 11. janúar – Jóh 1.29–34
Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: „Sjá, Guðs lamb sem ber synd heimsins. Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður sem er mér fremri því hann var til á undan mér. Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni að hann opinberist Ísrael.“
Og Jóhannes vitnaði: „Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu og hann nam staðar yfir honum. Sjálfur þekkti ég hann ekki en sá er sendi mig að skíra með vatni sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda. Þetta sá ég og ég vitna að hann er sonur Guðs.“
Biblíulestur 8. maí – Jóh 16.16–23
Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“ Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja við okkur: [...]
Biblíulestur 7. maí – Slm 143
Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu. Leið þjón þinn ekki fyrir rétt því að enginn sem lifir er [...]
Biblíulestur 6. maí – Matt 14.13–36
Þegar Jesús heyrði þetta fór hann þaðan á báti á óbyggðan stað og vildi vera einn. En fólkið frétti það og fór gangandi á eftir honum úr borgunum. Þegar Jesús [...]
Biblíulestur 5. maí – Matt 13.53–14.12
Þegar Jesús hafði lokið þessum dæmisögum hélt hann þaðan. Hann kom í ættborg sína og tók að kenna þeim í samkundu þeirra. Þeir undruðust stórum og sögðu: „Hvaðan kemur honum [...]
Biblíulestur 4. maí – Matt 13.36–52
Þá skildi Jesús við mannfjöldann og fór inn. Lærisveinar hans komu til hans og sögðu: „Skýrðu fyrir okkur dæmisöguna um illgresið á akrinum.“ Hann mælti: „Sá er sáir góða sæðinu [...]
Biblíulestur 3. maí – Matt 13.24–35
Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er um himnaríki og mann er sáði góðu sæði í akur sinn. En er menn voru í svefni kom óvinur hans, sáði illgresi meðal [...]