Davíðssálmur.
Drottinn, heyr þú bæn mína,
ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni,
bænheyr mig í réttlæti þínu.
Leið þjón þinn ekki fyrir rétt
því að enginn sem lifir er réttlátur fyrir augliti þínu.
Óvinur ofsækir mig.
Hann traðkar líf mitt niður,
lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.
Kjarkurinn bregst mér,
hjartað stöðvast í brjósti mér.
Ég minnist fornra daga,
hugleiði allar gjörðir þínar,
ígrunda verk handa þinna.
Ég lyfti upp höndum mínum til þín,
mig þyrstir eftir þér eins og örfoka land. (Sela)
Bænheyr mig fljótt, Drottinn,
því að lífsþróttur minn þverr.
Byrg eigi auglit þitt fyrir mér
svo ég líkist eigi þeim sem grafnir eru.
Lát mig heyra miskunn þína að morgni dags
því að þér treysti ég.
Vísa mér veginn sem ég skal halda
því að til þín hef ég sál mína.
Bjarga mér frá óvinum mínum, Drottinn,
ég flý á náðir þínar.
Kenn mér að gera vilja þinn
því að þú ert Guð minn,
þinn góði andi leiði mig
um slétta braut.
Leyf mér að lifa sakir nafns þíns, Drottinn,
leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns.
Lát óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar,
tortím öllum sem ógna lífi mínu
því að ég er þjónn þinn.