Biblíulestur 3. febrúar – Opb 7.9–17
Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af öllum þjóðum og kynkvíslum, lýðum og tungum, stóð frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, skrýddur hvítum skikkjum og hafði pálmagreinar í höndum. Og hann hrópaði hárri röddu:
Hjálpræðið kemur frá Guði vorum,
sem í hásætinu situr, og lambinu.
Allir englarnir stóðu kringum hásætið og öldungana og verurnar fjórar. Og þeir féllu fram fyrir hásætinu á ásjónur sínar, tilbáðu Guð og sögðu:
Amen! Lofgjörðin og dýrðin,
viskan og þakkargjörðin,
heiðurinn og mátturinn og krafturinn
sé Guði vorum um aldir alda. Amen.
Einn af öldungunum tók þá til máls og sagði við mig: „Hverjir eru þessir menn sem skrýddir eru hvítum skikkjum og hvaðan eru þeir komnir?“
Og ég sagði við hann: „Herra minn, þú veist það.“
Hann sagði við mig: „Þetta eru þeir sem komnir eru úr þrengingunni miklu og hafa hvítþvegið skikkjur sínar í blóði lambsins. Þess vegna eru þeir frammi fyrir hásæti Guðs og þjóna honum dag og nótt í musteri hans og sá sem í hásætinu situr mun búa hjá þeim. Þá mun hvorki hungra né þyrsta framar og eigi mun heldur sól brenna þá né nokkur breyskja vinna þeim mein. Því að lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, mun vera hirðir þeirra og leiða þá til vatnslinda lífsins. Og Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra.“
Biblíulestur 28. september – Lúk 20.41–21.11
Jesús sagði við þá: „Hvernig geta menn sagt að Kristur sé sonur Davíðs? Davíð segir sjálfur í Sálmunum: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar þangað [...]
Biblíulestur 27. september – Lúk 20.27–40
Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við Jesú: „Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður kvæntur en barnlaus skuli bróðir [...]
Biblíulestur 26. september – Lúk 20.9–26
Og Jesús tók að segja fólkinu dæmisögu þessa: „Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala. Á settum tíma sendi hann þjón [...]
Biblíulestur 25. september – Matt 6.24–34
Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón. Því segi ég yður: Verið [...]
Biblíulestur 24. september – Okv 11.22–31
Eins og gullhringur í svínstrýni er fríð kona sem enga háttvísi kann. Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs en vonir ranglátra kalla yfir sig reiðidóm. Einn miðlar öðrum af [...]
Biblíulestur 23. september – Lúk 19.45–20.8
Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja og mælti við þá: „Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús en þér [...]