Biblíulestur 4. febrúar – Opb 8.1–11
Þegar lambið lauk upp sjöunda innsiglinu varð þögn á himni hér um bil hálfa stund. Og ég sá að englunum sjö, sem stóðu frammi fyrir Guði, voru fengnar sjö básúnur.
Og annar engill kom og nam staðar við altarið. Hann hélt á reykelsiskeri úr gulli. Honum var fengið mikið reykelsi til þess að hann skyldi leggja það við bænir allra hinna heilögu á gullaltarið frammi fyrir hásætinu. Og reykurinn af reykelsinu steig upp með bænum hinna heilögu úr hendi engilsins frammi fyrir Guði. Þá tók engillinn reykelsiskerið og fyllti það með glóðum af altarinu og varpaði ofan á jörðina. Urðu þá þrumur, dunur og eldingar og jarðskjálfti.
Og englarnir sjö, sem héldu á básúnunum sjö, bjuggu sig til að blása.
Hinn fyrsti básúnaði. Þá varð hagl og eldur, blóði blandað, og því var varpað ofan á jörðina. Þriðjungur jarðarinnar eyddist í loga og þriðjungur trjánna og allt grængresi.
Annar engillinn básúnaði. Þá var sem miklu fjalli, logandi af eldi, væri varpað í hafið. Þriðjungur hafsins breyttist í blóð. Dó þá þriðjungur lífvera í hafinu og þriðjungur skipanna fórst.
Þriðji engillinn básúnaði. Þá féll stór stjarna af himni, logandi sem blys. Hún féll ofan á þriðjung fljótanna og á upptök vatnanna. Nafn stjörnunnar er Remma. Þriðjungur vatnanna varð rammur og margir menn biðu bana af vötnunum af því að þau voru orðin beisk.
Biblíulestur 4. október – Dóm 1.1–21
Eftir andlát Jósúa spurðu Ísraelsmenn Drottin: „Hver okkar skal fara fyrstur gegn Kanverjum til þess að berjast við þá?“ Drottinn sagði: „Júda skal fara gegn þeim. Ég gef landið í [...]
Biblíulestur 3. október – Lúk 22.7–30
Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom er slátra skyldi páskalambinu sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: „Farið og búið til páskamáltíðar fyrir okkur.“ Þeir sögðu við hann: „Hvar [...]
Biblíulestur 2. október – Lúk 7.11–17
Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var verið að [...]
Biblíulestur 1. október – Slm 24
Davíðssálmur. Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa, því að hann grundvallaði hana á hafinu, festi hana á vötnunum. Hver fær [...]
Biblíulestur 30. september – Lúk 21.29–22.6
Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd. Eins [...]
Biblíulestur 29. september – Lúk 21.12–28
En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. [...]