Biblíulestur 2. febrúar – Opb 6.12–7.8
Og ég sá er lambið rauf sjötta innsiglið að mikill landskjálfti varð og sólin varð svört sem hærusekkur og allt tunglið varð sem blóð. Og stjörnur himinsins hröpuðu niður á jörðina eins og þegar fíkjutré, skekið af stormvindi, fellir haustaldin sín. Og himinninn sviptist burt eins og þegar bókfell vefst saman og hvert fjall og ey færðist úr stað sínum. Konungar jarðarinnar, höfðingjar og herforingjar, auðmenn og mektarmenn, hver þræll og þegn fólu sig í hellum og í hömrum fjalla. Og þeir segja við fjöllin og hamrana: „Hrynjið yfir oss og felið oss fyrir ásjónu hans sem í hásætinu situr og fyrir reiði lambsins. Hinn mikli dagur er kominn þegar sá sem í hásætinu situr og lambið birta reiði sína og hver mun þá geta staðist?“
Eftir þetta sá ég fjóra engla er stóðu á fjórum skautum jarðarinnar. Þeir héldu fjórum vindum jarðarinnar svo að vindur næði hvorki að blása yfir jörðina né hafið né yfir nokkurt tré. Og ég sá annan engil stíga upp í austri. Hann hélt á innsigli lifanda Guðs og hrópaði hárri röddu til englanna fjögurra, sem fengið höfðu vald til að granda jörðunni og hafinu, og sagði:
„Vinnið ekki jörðunni mein og ekki heldur hafinu né trjánum þar til er vér höfum sett innsigli á enni þjóna Guðs vors.“ Og ég heyrði hve margir menn höfðu verið merktir innsigli Guðs. Hundrað fjörutíu og fjórar þúsundir voru merktar innsigli af öllum ættkvíslum Ísraelsmanna. Af Júda ættkvísl voru tólf þúsund merkt innsigli, af Rúbens ættkvísl tólf þúsund, af Gaðs ættkvísl tólf þúsund, af Assers ættkvísl tólf þúsund, af Naftalí ættkvísl tólf þúsund, af Manasse ættkvísl tólf þúsund, af Símeons ættkvísl tólf þúsund, af Leví ættkvísl tólf þúsund, af Íssakars ættkvísl tólf þúsund, af Sebúlons ættkvísl tólf þúsund, af Jósefs ættkvísl tólf þúsund, af Benjamíns ættkvísl tólf þúsund menn merktir innsigli.
Biblíulestur 22. september – Lúk 19.28–44
Þá er Jesús hafði þetta mælt hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem. Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, sendi hann tvo lærisveina [...]
Biblíulestur 21. september – Lúk 19.11–27
Jesús sagði þeim sem höfðu hlýtt á hann aðra dæmisögu því að hann var í nánd við Jerúsalem og þeir ætluðu að Guðs ríki mundi þegar birtast. Hann sagði: „Maður [...]
Biblíulestur 20. september – Lúk 18.35–19.10
Svo bar við, er Jesús nálgaðist Jeríkó, að blindur maður sat þar við veginn og betlaði. Hann heyrði að mannfjöldi gekk hjá og spurði hvað um væri að vera. Var [...]
Biblíulestur 19. september – Lúk 18.18–34
Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“ Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema [...]
Biblíulestur 18. september – Lúk 17.11–19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. [...]
Biblíulestur 17. september – Slm 23
Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, [...]