Jesús sagði þeim sem höfðu hlýtt á hann aðra dæmisögu því að hann var í nánd við Jerúsalem og þeir ætluðu að Guðs ríki mundi þegar birtast. Hann sagði: „Maður nokkur tiginborinn fór í fjarlægt land til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur. Hann kallaði tíu þjóna sína, seldi þeim í hendur tíu pund og sagði við þá: Verslið með þetta þangað til ég kem. En landar hans hötuðu hann og gerðu sendimann á eftir honum til að segja: Við viljum ekki að þessi maður verði konungur yfir okkur.
Nú kom hann aftur og hafði tekið konungdóm. Þá lét hann kalla fyrir sig þjóna þá er hann hafði selt féð í hendur til þess að vita hvað hver hefði grætt.
Hinn fyrsti kom og sagði: Herra, pund þitt hefur ávaxtast um tíu pund. Konungur sagði við hann: Gott, þú góði þjónn, þú varst trúr í mjög litlu og því skaltu ráða fyrir tíu borgum. Annar kom og sagði: Pund þitt, herra, hefur gefið af sér fimm pund. Hann sagði eins við hann: Þú skalt og vera yfir fimm borgum. Enn kom einn og sagði: Herra, hér er pund þitt. Ég hef haft það geymt í dúki því að ég var hræddur við þig en þú ert maður strangur og tekur það út sem þú lagðir ekki inn og uppskerð það sem þú sáðir ekki. Konungur segir við hann: Illi þjónn, eftir orðum þínum dæmi ég þig. Þú vissir að ég er maður strangur, sem tek það út sem ég lagði ekki inn og uppsker það sem ég sáði ekki. Hvers vegna léstu þá ekki fé mitt í banka? Þá hefði ég fengið það með vöxtum er ég kom heim.
Og konungur sagði við þá er hjá voru: Takið af honum pundið og fáið þeim sem hefur tíu pundin. En þeir sögðu við hann: Herra, hann hefur tíu pund. Konungur svaraði: Ég segi ykkur: Hverjum sem hefur mun gefið verða og frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur. En færið hingað þessa óvini mína, sem vildu ekki að ég yrði konungur yfir sér, og höggvið þá frammi fyrir mér.“