Biblíulestur 7. febrúar – Slm 115.1–11
Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss
heldur þínu nafni dýrðina
sakir miskunnar þinnar og trúfesti.
Hví skyldu þjóðirnar segja:
„Hvar er Guð þeirra?“
Guð vor er á himni,
allt sem honum þóknast gerir hann.
Skurðgoð þeirra eru silfur og gull,
handaverk manna.
Þau hafa munn en tala ekki,
augu en sjá ekki.
Þau hafa eyru en heyra ekki,
nef en finna enga lykt.
Þau hafa hendur en þreifa ekki,
fætur en ganga ekki,
úr barka þeirra kemur ekkert hljóð.
Eins og þau eru verða smiðir þeirra,
allir þeir er á þau treysta.
Ísrael, treystu Drottni.
Hann er hjálp þeirra og skjöldur.
Arons ætt, treystu Drottni.
Hann er hjálp þeirra og skjöldur.
Þér, sem óttist Drottin, treystið Drottni.
Hann er hjálp þeirra og skjöldur.
Biblíulestur 22. október – Slm 27.7-14
Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, ver mér náðugur og bænheyr mig. Ég minnist þess að þú sagðir: „Leitið auglitis míns.“ Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn. Hyl eigi auglit þitt [...]
Biblíulestur 21. október – Dóm 7.16–25
Þá skipti hann mönnunum þrjú hundruð í þrjá flokka og fékk þeim öllum horn í hönd, tómar krúsir og blys í hverri krús. Og hann sagði við þá: „Lítið á [...]
Biblíulestur 20. október – Dóm 7.1–15
Nú hélt Jerúbbaal, það er Gídeon, snemma af stað og allt liðið, er með honum var, og settu þeir upp herbúðir sínar hjá Haródlind. Herbúðir Midíans voru fyrir norðan hann, [...]
Biblíulestur 19. október – Dóm 6.25–40
Þessa sömu nótt sagði Drottinn við hann: „Taktu uxa föður þíns og annan uxa, sjö vetra. Brjóttu Baalsaltari föður þíns og felldu Aséruna hjá því. Reistu svo Drottni, Guði þínum, [...]
Biblíulestur 18. október – Dóm 6.11–24
Þá kom engill Drottins og settist undir eikina í Ofra sem Jóas, niðji Abíesers, átti en Gídeon, sonur hans, var að þreskja hveiti í vínþröng til að fela það fyrir [...]
Biblíulestur 17. október – Dóm 6.1–10
Ísraelsmenn gerðu það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Midíans í sjö ár. Og Midían varð Ísrael voldugri. Gerðu Ísraelsmenn sér þá fylgsni á [...]