Biblíulestur 6. febrúar – Opb 9.13–21
Og sjötti engillinn básúnaði. Þá heyrði ég rödd eina frá hornunum á gullaltarinu sem er frammi fyrir Guði. Og röddin sagði við sjötta engilinn sem hélt á básúnunni: „Leys þú englana fjóra sem bundnir eru við fljótið mikla, Efrat.“ Og englarnir fjórir voru leystir. Þeim hafði verið haldið búnum til þessarar stundar, þessa dags, þessa mánaðar og þessa árs til þess að deyða þriðjung manna. Ég fékk að heyra fjölda riddarasveita þeirra. Tala þeirra var tvennar tíu þúsundir tíu þúsunda. Ég sá líka í sýninni hestana og þá sem riðu þeim: Þeir höfðu eldrauðar, svartbláar og brennisteinsgular brynjur og höfuð hestanna voru eins og ljónshöfuð. Af munnum þeirra gekk út eldur, reykur og brennisteinn. Í þessum þremur plágum, eldinum, reyknum og brennisteininum, sem út gekk af munni þeirra, fórst þriðjungur manna. Því að vald hestanna býr bæði í munni þeirra og í töglum þeirra því að tögl þeirra eru lík höggormum. Eru höfuð á þeim og með þeim granda þeir.
Þeir menn sem ekki fórust í þessum plágum létu samt ekki af breytni sinni og vildu ekki hætta að tilbiðja illu andana og skurðgoðin úr gulli, silfri, eiri, steini og tré, sem hvorki geta séð, heyrt né gengið. Ekki létu þeir heldur af manndrápum sínum og töfrum, frillulífi sínu og þjófnaði.
Biblíulestur 16. október – Mrk 12.28–34
Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“ Jesús svaraði: „Æðst [...]
Biblíulestur 15. október – Slm 27.1-6
Davíðssálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? Þegar illvirkjar þrengja að mér til þess að [...]
Biblíulestur 14. október – Dóm 5.15b–31
Flokkar Rúbens sýndu mikla hugprýði. Hví sast þú milli fjárkvíanna og hlustaðir á flautuleik smalanna? Flokkar Rúbens sýndu mikla hugprýði. Gíleað hélt kyrru fyrir hinum megin Jórdanar og hvers vegna [...]
Biblíulestur 13. október – Dóm 5.1–15a
Á þeim degi sungu þau Debóra og Barak Abínóamsson á þessa leið: Lýðnum hlotnaðist frelsi í Ísrael og fólkið kom af frjálsum vilja, lofið því Drottin. Heyrið, þér konungar, hlustið [...]
Biblíulestur 12. október – Dóm 4.11–24
Heber Keníti hafði skilist við Kenítana, niðja Hóbabs, tengdaföður Móse, og sló hann tjöldum sínum allt að Elon Besaanaím sem er hjá Kedes. Sísera var sagt frá því að Barak [...]
Biblíulestur 11. október – Dóm 3.26–4.10
En Ehúð komst undan meðan þeir töfðust. Hann var kominn fram hjá steinstyttunum og sloppinn til Seíra. Þegar hann var þangað kominn lét hann þeyta lúður á Efraímsfjöllum. Fóru Ísraelsmenn [...]