Biblíulestur 8. febrúar – Mrk 4.26–32
Þá sagði Jesús: „Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. En þá er ávöxturinn er fullþroska lætur hann þegar bera út sigðina því að uppskeran er komin.“
Og Jesús sagði: „Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum við að lýsa því? Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.“
Biblíulestur 28. október – Dóm 9.42–57
En daginn eftir fór fólkið út á akurinn og sögðu menn Abímelek frá þessu. Þá tók hann lið sitt, skipti því í þrjár sveitir og leyndist á akrinum. Þegar hann [...]
Biblíulestur 27. október – Dóm 9.22–41
Abímelek réð nú fyrir Ísrael í þrjú ár. Þá sendi Guð anda sundurþykkis milli Abímeleks og Síkembúa, svo að Síkembúar brugðu trúnaði við Abímelek, til þess að hefnd gæti komið [...]
Biblíulestur 26. október – Dóm 9.6–9.21
En allir Síkembúar söfnuðust nú saman og allir þeir sem bjuggu í Bet Milló og tóku þeir Abímelek til konungs hjá merkisteinseikinni við Síkem. Þegar Jótam frétti þetta fór hann [...]
Biblíulestur 25. október – Dóm 8.22–9.5
Þá sögðu Ísraelsmenn við Gídeon: „Drottnaðu yfir okkur, þú og sonur þinn og sonarsonur þinn, því að þú hefur frelsað okkur undan Midían.“ En Gídeon sagði við þá: „Ekki mun [...]
Biblíulestur 24. október – Dóm 8.1–21
Efraímítar sögðu við Gídeon: „Hví gerðir þú okkur það að kalla okkur ekki til hjálpar? Þú hefur farið einn til þess að berjast við Midíaníta.“ Og þeir átöldu hann harðlega. [...]
Biblíulestur 23. október – Matt 9.1–8
Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar. Þar færa menn honum lama mann sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra sagði [...]