Biblíulestur 9. febrúar – Opb 10.1–11
Og ég sá annan sterkan engil stíga af himni ofan, hjúpaðan skýi. Regnboginn var yfir höfði honum og ásjóna hans var sem sólin og fætur hans sem eldstólpar. Hann hélt á lítilli opinni bók í hendinni. Hægra fæti stóð hann á hafinu en vinstra fæti á jörðunni. Hann kallaði hárri röddu eins og þegar ljón öskrar. Og er hann hafði kallað glumdi í þrumunum sjö. Þegar ég ætlaði að fara að skrifa það sem þrumurnar sögðu heyrði ég rödd af himni sem sagði: „Geymdu með sjálfum þér það sem þrumurnar sjö töluðu og rita það ekki.“
Og engillinn, sem ég sá standa á hafinu og á jörðunni, hóf upp hægri hönd sína til himins og sór við þann sem lifir um aldir alda, hann sem skóp himininn og það sem í honum er, jörðina og það sem á henni er og hafið og það sem í því er, og sagði: Lengri frestur verður ekki gefinn. En þegar kemur að því að sjöundi engillinn fer að básúna hefur Guð látið rætast sitt leynda ráð sem hann hafði boðað þjónum sínum, spámönnunum.
Röddin, sem ég heyrði af himni, talaði þá aftur til mín og sagði: „Far og tak opnu bókina úr hendi engilsins sem stendur á hafinu og á jörðunni.“
Ég fór til engilsins og bað hann að fá mér litlu bókina. Og hann segir við mig: „Tak hana og et. Hún verður beisk í maga þínum en í munni þínum mun hún sæt sem hunang.“
Ég tók litlu bókina úr hendi engilsins, át hana og í munni mér var hún sæt sem hunang. En er ég hafði etið hana fann ég til beiskju í maga mínum. Þá var sagt við mig: „Enn átt þú að flytja spámannlegan boðskap gegn mörgum lýðum og þjóðum, tungum og konungum.“
Biblíulestur 3. nóvember – Heb 9.15–28
Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina eilífu [...]
Biblíulestur 2. nóvember – Heb 9.1–14
Nú hafði fyrri sáttmálinn líka fyrirskipanir um þjónustuna og jarðneskan helgidóm. Tjaldbúð var gerð og í fremri hluta hennar voru bæði ljósastikan, borðið og skoðunarbrauðin og heitir hún „hið heilaga“. [...]
Biblíulestur 1. nóvember – Dóm 10.1–18
Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódósonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímsfjöllum og var dómari í Ísrael í tuttugu og þrjú ár. [...]
Biblíulestur 31. október – Jóh 8.31–36
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn [...]
Biblíulestur 30. október – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en [...]
Biblíulestur 29. október – Okv 12.1–14
Sá sem elskar aga elskar þekkingu en sá sem hatar umvöndun er heimskur. Hinn góði hlýtur velþóknun Drottins en meinfýsinn mann fyrirdæmir hann. Ranglætið veitir engum fótfestu en réttlætið stendur [...]