Biblíulestur 10. febrúar – Opb 11.1–10
Mér var fengin mælistika, lík staf, og sagt: „Rís upp, mæl musteri Guðs og altarið og tel þau sem tilbiðja þar. En forgarðinum fyrir utan musterið skalt þú sleppa og mæl hann ekki því að hann er ætlaður heiðingjunum og þeir munu fótum troða borgina helgu í fjörutíu og tvo mánuði. Ég mun láta votta mína tvo flytja spádómsorð í eitt þúsund tvö hundruð og sextíu daga, klædda hærusekkjum.“
Þetta eru olíuviðirnir tveir og ljósastikurnar tvær sem standa frammi fyrir Drottni jarðarinnar. Og ef einhver vill granda þeim gengur eldur út úr munni þeirra og eyðir óvinum þeirra og þannig skal hver deyja sem vill granda þeim. Þeir hafa vald til að loka himninum til þess að eigi rigni meðan þeir flytja boðskap sinn. Þeir hafa einnig vald til að breyta vötnunum í blóð og slá jörðina með hvers kyns plágu svo oft sem þeir vilja.
Og er þeir hafa lokið vitnisburði sínum mun dýrið, sem upp stígur úr undirdjúpinu, heyja stríð við þá og mun sigra þá og deyða þá. Og lík þeirra munu liggja á strætum borgarinnar miklu þar sem Drottinn þeirra var krossfestur. Hún heitir á andlegan hátt Sódóma og Egyptaland. Menn af öllum lýðum og kynkvíslum, tungum og þjóðum sjá lík þeirra þrjá og hálfan dag og leyfa ekki að þau verði lögð í gröf. Og íbúar jarðarinnar gleðjast yfir þeim og fagna og senda hver öðrum gjafir því að þessir tveir spámenn kvöldu þá sem á jörðunni búa.
Biblíulestur 9. nóvember – Heb 11.17–31
Fyrir trú fórnfærði Abraham Ísak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengið hafði fyrirheitin, var reiðubúinn að fórnfæra einkasyni sínum. Við Abraham hafði Guð mælt: „Afkomendur Ísaks munu taldir [...]
Biblíulestur 8. nóvember – Heb 11.1–16
Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá. Fyrir trú hlutu mennirnir fyrr á tíðum velþóknun Guðs. Fyrir trú skiljum [...]
Biblíulestur 7. nóvember – Heb 10.19–39
Vegna þess að Jesús úthellti blóði sínu megum við nú, systkin, með djörfung ganga inn í hið heilaga. Þangað vígði hann okkur veginn, nýjan veg lífsins inn í gegnum fortjaldið [...]
Biblíulestur 6. nóvember – Jóh 4.46–53
Nú kom Jesús aftur til Kana í Galíleu þar sem hann hafði gert vatn að víni. Í Kapernaúm var konungsmaður nokkur sem átti sjúkan son. Þegar hann frétti að Jesús [...]
Biblíulestur 5. nóvember – Slm 31.1-14
Til söngstjórans. Davíðssálmur. Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér í réttlæti þínu. Hneig eyra þitt að mér, kom skjótt mér til hjálpar. [...]
Biblíulestur 4. nóvember – Heb 10.1–18
Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Þær sömu fórnir sem ár eftir ár eru bornar fram geta því aldrei gert þá fullkomna [...]