Biblíulestur 11. febrúar – Opb 11.11–19
Eftir dagana þrjá og hálfan fór lífsandi frá Guði í þá og þeir risu á fætur. Mikill ótti kom yfir alla sem sáu þá. Og þeir heyrðu rödd mikla af himni sem sagði við þá: „Stígið upp hingað.“ Og þeir stigu upp til himins í skýi og óvinir þeirra horfðu á þá. Á þeirri stundu varð landskjálfti mikill og tíundi hluti borgarinnar hrundi. Í landskjálftanum fórust sjö þúsundir manna en þeir sem eftir voru urðu ótta slegnir og fólu sig á vald Guðs á himni.
Önnur plágan er liðin hjá. Brátt kemur þriðja plágan.
Sjöundi engillinn básúnaði. Þá heyrðust raddir miklar á himni er sögðu: „Drottinn og Kristur hans hafa fengið valdið yfir heiminum og hann mun ríkja um aldir alda.“ Og öldungarnir tuttugu og fjórir, þeir er sitja frammi fyrir Guði í hásætum sínum, féllu fram á ásjónur sínar, tilbáðu Guð og sögðu:
Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi,
þú sem ert og þú sem varst,
að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla
og gerst konungur.
Þjóðirnar reiddust
og reiði þín kom
og tíminn til að dæma hina dauðu og gefa launin þjónum þínum,
spámönnunum og hinum heilögu
og þeim sem óttast nafn þitt, smáum og stórum,
og til að eyða þeim sem jörðina eyða.
Og musteri Guðs opnaðist, það sem á himni er, og sáttmálsörk hans birtist í musteri hans. Og eldingar komu og dunur og þrumur og landskjálfti og hagl mikið.
Biblíulestur 15. nóvember – Heb 13.1–16
Bróðurkærleikurinn haldist. Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða þar [...]
Biblíulestur 14. nóvember – Heb 12.18–29
Þið eruð ekki komin til fjalls sem á verður þreifað, ekki til brennandi elds og sorta, myrkurs, ofviðris og básúnuhljóms og raustar sem talaði svo að þeir sem hana heyrðu [...]
Biblíulestur 13. nóvember – Matt 25.1–13
Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. Þær fávísu tóku [...]
Biblíulestur 12. nóvember – Slm 31.15-25
En ég treysti þér, Drottinn, og segi: „Þú ert Guð minn.“ Í þinni hendi eru dagar mínir, frelsa mig úr greipum óvina minna og ofsækjenda. Lát ásjónu þína lýsa yfir [...]
Biblíulestur 11. nóvember – Heb 12.4–17
Enn sem komið er hefur barátta ykkar við syndina ekki kostað ykkur lífið. Hafið þið gleymt hvernig Guð hvetur ykkur eins og börn sín: Barnið mitt, lítilsvirð ekki aga Drottins [...]
Biblíulestur 10. nóvember – Heb 11.32–12.3
Hvað á ég að orðlengja framar um þetta? Mig mundi skorta tíma ef ég færi að segja frá Gídeon, Barak, Samson og Jefta og af Davíð, Samúel og spámönnunum. Fyrir [...]