Bróðurkærleikurinn haldist. Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða þar eð þið finnið til eins og þeir.
Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum og hjónasængin sé óflekkuð því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.
Verið ekki fégráðug en látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sjálfur sagt: „Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.“ Því getum við örugg sagt:
Drottinn er minn hjálpari,
eigi mun ég óttast.
Hvað geta mennirnir gert mér?

Minnist leiðtoga ykkar sem Guðs orð hafa til ykkar talað. Virðið fyrir ykkur hvernig ævi þeirra lauk og líkið eftir trú þeirra. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. Látið ekki ýmiss konar framandi kenningar afvegaleiða ykkur. Látið náð Guðs næra hjartað, ekki mat af ýmsu tagi. Þeir sem sinntu slíku höfðu eigi happ af því.
Við höfum altari og þeir er tjaldbúðinni þjóna hafa ekki leyfi til að neyta þess sem á því er. Æðsti presturinn ber blóð dýranna inn í helgidóminn til syndafórnar en hræ þeirra eru brennd fyrir utan herbúðirnar. Þess vegna leið Jesús fyrir utan hliðið, til þess að hann helgaði lýðinn með blóði sínu. Göngum því til hans út fyrir herbúðirnar og berum vanvirðu hans. Því að hér höfum við ekki borg er stendur heldur leitum við hinnar komandi. Með hjálp Jesú skulum við því án afláts færa Guði lofgjörðarfórn, ávöxt vara er játa nafn hans. En gleymið ekki velgjörðaseminni og hjálpseminni því að slíkar fórnir eru Guði þóknanlegar.