En ég treysti þér, Drottinn,
og segi: „Þú ert Guð minn.“
Í þinni hendi eru dagar mínir,
frelsa mig úr greipum óvina minna og ofsækjenda.
Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn,
hjálpa mér sakir elsku þinnar.
Lát mig ekki verða til háðungar, Drottinn,
þegar ég hrópa til þín.
Lát hina guðlausu verða til skammar,
hverfa hljóða til heljar.
Lát þagna lygavarir
sem mæla drambsyrði gegn réttlátum
með hroka og fyrirlitningu.
Hversu mikil er gæska þín
sem þú hefur geymt þeim sem óttast þig
og auðsýnir þeim sem leita hælis hjá þér
í augsýn allra.
Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns
fyrir svikráðum manna,
varðveitir þá í húsi þínu
fyrir illum tungum.
Lofaður sé Drottinn
því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð
í öruggri borg.
Ég hugsaði í angist minni:
„Ég er burtrekinn frá augum þínum.“
Samt heyrðir þú ákall mitt
er ég hrópaði til þín.
Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu.
Drottinn varðveitir hina trúföstu en geldur hrokafullum margfalt.
Verið sterkir og hughraustir,
allir sem bíðið Drottins.