Biblíulestur 23. febrúar – Opb 16.1–11
Þá heyrði ég mikla raust frá musterinu segja við englana sjö: „Hellið úr skálum Guðs reiði yfir jörðina.“
Fyrsti engillinn fór þá og hellti úr sinni skál yfir jörðina og vond og illkynjuð kaun komu á þá menn sem höfðu merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess.
Annar engillinn hellti úr sinni skál í hafið og það varð að blóði eins og úr dauðum manni og allar lífverur í hafinu dóu.
Þriðji engillinn hellti úr sinni skál í fljótin og uppsprettur vatnanna og þau urðu að blóði. Og ég heyrði engil vatnanna segja: „Réttlátur ert þú að þú hefur dæmt þannig, þú sem ert og þú sem varst, þú hinn heilagi. Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna og því hefur þú gefið þeim blóð að drekka og verðir eru þeir þess.“ Og ég heyrði rödd frá altarinu segja: „Drottinn Guð, þú alvaldi, sannir og réttlátir eru dómar þínir.“
Og fjórði engillinn hellti úr sinni skál yfir sólina. Og sólinni var gefið vald til að brenna mennina í eldi. Og mennirnir stiknuðu í ofurhita og lastmæltu nafni Guðs sem hefur vald yfir þessum plágum. Ekki sáu þeir að sér að þeir gæfu Guði dýrðina.
Fimmti engillinn hellti úr sinni skál yfir hásæti dýrsins. Og ríki þess myrkvaðist og menn bitu í tungur sínar af kvöl. Og menn lastmæltu Guði himinsins fyrir kvalirnar og fyrir kaun sín en eigi bættu þeir ráð sitt og létu ekki af verkum sínum.
Biblíulestur 26. janúar – 2Mós 14.1–18
Drottinn ávarpaði Móse og sagði: „Segðu Ísraelsmönnum að snúa við og setja búðir sínar andspænis Pí Hakírót, milli Migdóls og hafsins, gegnt Baal Sefón. Andspænis Baal Sefón skuluð þið slá [...]
Biblíulestur 25. janúar – 1Tím 3.1–13
Það orð er satt. Sækist einhver eftir biskupsstarfi þá girnist hann göfugt hlutverk. Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur [...]
Biblíulestur 24. janúar – 2Kor 6.1–13
Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á [...]
Biblíulestur 23. janúar – 1Kor 9.15–27
En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess að svo verði við mig gert. Mér væri betra að deyja. Enginn skal [...]
Biblíulestur 22. janúar – Lúk 17.5–10
Postularnir sögðu við Drottin: „Auk oss trú!“ En Drottinn sagði: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest [...]
Biblíulestur 21.1.2023 – Slm 38.13–23
Þeir sem sitja um líf mitt leggja snörur fyrir mig, þeir sem vilja mér illt rægja mig og sitja á svikráðum allan liðlangan daginn. En ég er sem daufur, ég [...]