Drottinn ávarpaði Móse og sagði: „Segðu Ísraelsmönnum að snúa við og setja búðir sínar andspænis Pí Hakírót, milli Migdóls og hafsins, gegnt Baal Sefón. Andspænis Baal Sefón skuluð þið slá upp búðum við hafið. Þá mun faraó hugsa um Ísraelsmenn: Þeir hafa villst í landinu, eyðimörkin hefur gleypt þá. Ég mun herða hjarta faraós svo að hann elti þá og ég mun birta dýrð mína á faraó og öllum her hans svo að Egyptar skilji að ég er Drottinn.“ Þetta gerðu þeir.
Egyptalandskonungi var tilkynnt að fólkið væri flúið. Þá snerist hugur faraós og þjóna hans gegn fólkinu og þeir sögðu: „Hvað höfum við gert? Við höfum sleppt Ísrael úr þjónustu okkar?“ Faraó lét því spenna fyrir hervagna sína og tók her sinn með sér. Hann hafði með sér sex hundruð úrvalsvagna og alla aðra hervagna Egyptalands og hafði foringja á hverjum.
Drottinn herti hjarta faraós Egyptalandskonungs og hélt hann á eftir Ísraelsmönnum en Ísraelsmenn héldu óhræddir burt. Egyptar eltu þá til Pí Hakírót gegnt Baal Sefón, allir hestar faraós, hervagnar, riddarar hans og herlið. Þar náðu þeir þeim þar sem þeir höfðu slegið upp búðum við hafið.
Faraó nálgaðist og þegar Ísraelsmenn komu auga á Egypta og sáu að þeir sóttu fram á eftir þeim urðu þeir mjög hræddir. Ísraelsmenn hrópuðu á hjálp til Drottins en sögðu við Móse: „Eru engar grafir til í Egyptalandi úr því að þú fórst með okkur til að deyja í eyðimörkinni? Hvers vegna hefurðu gert okkur þetta og farið með okkur út úr Egyptalandi? Er það ekki einmitt þetta sem við sögðum við þig í Egyptalandi: Láttu okkur í friði. Við viljum þræla fyrir Egypta því að það er skárra fyrir okkur að þræla fyrir Egypta en að deyja úti í eyðimörkinni.“ Móse svaraði fólkinu: „Óttist ekki. Standið kyrr og horfið á þegar Drottinn bjargar ykkur í dag því að þið munuð aldrei framar sjá Egypta eins og þið munuð sjá þá í dag. Drottinn mun sjálfur berjast fyrir ykkur en þið skuluð ekkert að hafast.“
Drottinn sagði við Móse: „Hvers vegna hrópar þú til mín? Segðu Ísraelsmönnum að halda af stað. En þú skalt reiða upp staf þinn og rétta hönd þína út yfir hafið og kljúfa það svo að Ísraelsmenn geti gengið á þurru í gegnum hafið. Sjálfur ætla ég að herða hjarta Egypta svo að þeir haldi á eftir þeim. Þá mun ég birta dýrð mína á faraó og öllum her hans, á hervögnum hans og riddurum. Egyptar munu komast að raun um að ég er Drottinn þegar ég birti dýrð mína á faraó, vögnum hans og riddurum.“