Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 10. mars – Opb 22.1–7

Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skæra sem kristall. Hún rann frá hásæti Guðs og lambsins eftir miðju stræti borgarinnar. Beggja vegna móðunnar var lífsins tré sem ber tólf sinnum ávöxt. Í hverjum mánuði ber það ávöxt sinn. Blöð trésins eru til lækningar þjóðunum. Engin bölvun mun framar til vera. Og hásæti Guðs og lambsins mun vera í borginni og þjónar hans munu þjóna honum. Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa hvorki lampaljós né sólarljós því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Og engillinn sagði við mig: „Þessi eru orðin trúu og sönnu. Og Drottinn Guð, sem veitir spámönnunum anda sinn, sendi engil sinn til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.“

Biblíulestur 5. apríl – 1Sam 1.17–28

Elí svaraði og sagði: „Farðu í friði. Guð Ísraels mun veita þér það sem þú baðst hann um.“ Hún sagði: „Megi ambátt þín finna náð fyrir augum þínum.“ Gekk hún [...]

Biblíulestur 4. apríl – 1Sam 1.1–16

Í Ramataím í Efraímsfjöllum bjó maður af Súfætt. Hann hét Elkana og var sonur Jeróhams Elíhúsonar, Tóhúsonar, Súfssonar frá Efraím. Hann átti tvær eiginkonur, hét önnur Hanna en hin Peninna. [...]

Biblíulestur 1.4.2023 – Slm 46.1–12

Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Því óttumst vér eigi þótt jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp hafsins, þótt vötnin dynji og ólgi, þótt fjöllin [...]

Fara efst