Biblíulestur 11. mars – Opb 22.8–21
Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Er ég hafði heyrt það og séð féll ég niður fyrir fótum engilsins sem sýndi mér þetta til þess að tilbiðja hann. Hann segir við mig: „Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og systkina þinna, spámannanna, og þeirra sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð.“
Og hann sagði við mig: „Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar því að þau eru að koma fram. Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti, hinn saurugi haldi áfram saurlífi sínu og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram heilögu líferni.
Sjá, ég kem skjótt og launin hef ég með mér til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er. Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn. Sælir eru þeir sem þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina. Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir og hver sem elskar og iðkar lygi.
Ég, Jesús, hef sent engil minn til að votta fyrir yður þessa hluti í söfnuðunum. Ég er rótarkvistur Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan.“
Og andinn og brúðurin segja: „Kom þú!“ Og sá sem heyrir segi: „Kom þú!“ Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill fær ókeypis lífsins vatn.
Ég, Jóhannes, votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau mun Guð á hann leggja þær plágur sem um er ritað í þessari bók. Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í lífsins tré og í borginni helgu sem um er ritað í þessari bók.
Sá sem þetta vottar segir: „Já, ég kem skjótt.“ Amen. Kom þú, Drottinn Jesús!
Náðin Drottins Jesú sé með öllum.
Biblíulestur 11. apríl – 1Sam 2.1–11
Hanna bað og sagði: Hjarta mitt fagnar í Drottni. Horn mitt er upphafið af Drottni. Ég hlæ að fjandmönnum mínum því að ég gleðst yfir hjálp þinni. Enginn er heilagur [...]
Biblíulestur á annan í páskum – Jóh 20.11–18
En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til [...]
Biblíulestur á Páskadag – Matt 28.1–10
Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður [...]
Biblíulestur 8. apríl – Matt 27.62–66
Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. [...]
Biblíulestur á Föstudeginum langa – Matt 27.33–55
Og er þeir komu til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður, gáfu þeir Jesú vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það en vildi ekki drekka. Þá krossfestu [...]
Biblíulestur á Skírdag – Lúk 22.14–20
Og er stundin var komin gekk Jesús til borðs og postularnir með honum. Og hann sagði við þá: „Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en [...]