Biblíulestur 13. mars – Hlj 1.12–22
Skiptir þetta engu yður sem fram hjá farið?
Skyggnist um og sjáið,
finnst sú kvöl sem jafnast á við
þá sem á mig var lögð,
mig sem Drottinn þjakaði
á degi sinnar brennandi reiði?
Af hæðum sendi hann eld
niður í bein mín,
lagði net fyrir fætur mér,
rak mig á bak aftur.
Hann gerði mig að auðn,
máttvana daginn langan.
Syndir mínar eru hnýttar í ok,
tvinnaðar saman af hendi hans.
Þær eru lagðar mér á háls,
hann hefur lamað þrótt minn.
Drottinn seldi mig í hendur þeirra
er ég fæ eigi staðist í móti.
Drottinn forsmáði hetjur mínar
sem í mér voru.
Hann stefndi liði gegn mér
til þess að yfirbuga æskumenn mína.
Í vínlagarþró
tróð Drottinn á meyjunni Júdadóttur.
Yfir þessu græt ég,
augu mín fljóta í tárum.
Því að huggarinn er mér fjarri,
sá er hressti sál mína.
Börn mín eru yfirgefin
því að óvinurinn bar hærri hlut.
Síon fórnar höndum
en enginn huggar hana.
Drottinn bauð út óvinum Jakobs
til að umkringja hann.
Jerúsalem er orðin
að viðurstyggð meðal þeirra.
Drottinn er réttlátur,
ég óhlýðnaðist boði hans.
Heyrið, allar þjóðir,
horfið á kvöl mína.
Meyjar mínar og yngismenn
fóru burt herleidd.
Ég hrópaði á ástmenn mína
en þeir brugðust mér.
Prestar mínir og öldungar
fórust í borginni
er þeir leituðu matar
til að draga fram lífið.
Sjá, Drottinn, ég er í nauðum stödd
og ólga hið innra.
Hjartað berst í brjósti mér
því að ég var svo uppreisnargjörn.
Úti fyrir sviptir sverðið mig börnum,
inni ríkir dauðinn.
Þeir heyrðu andvörp mín
en enginn huggaði mig.
Allir óvinir mínir spurðu ógæfu mína,
glöddust af því að þú gerðir þetta.
Lát daginn koma sem þú hefur boðað,
þá verða þeir jafningjar mínir.
Lát alla illsku þeirra koma fyrir auglit þitt
og far með þá
eins og þú fórst með mig
sökum allra synda minna.
Því að andvörp mín eru mörg
og hjarta mitt sjúkt.
Biblíulestur 23. apríl – Jóh 21.15–19
Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“ Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“ Jesús segir við [...]
Biblíulestur 22.4.2023 – Slm 48.1–15
Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg Guðs vors. Hans heilaga fjall, sem gnæfir hátt og fagurt, er allri jörðu gleði, Síonarfjall yst í norðri, borg hins mikla konungs. [...]
Biblíulestur 21.4.2023 – 1Jóh 3.11–24
Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. Ekki vera eins og Kain sem var af hinum vonda og myrti [...]
Biblíulestur 20. apríl – Lúk 17.11–19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. [...]
Biblíulestur 19. apríl – Jak 2.14–26
Hvað stoðar það, bræður mínir og systur, þótt einhver segist hafa trú en sýnir það eigi í verki? Mun trúin geta frelsað hann? Ef bróðir eða systir eru nakin og [...]
Biblíulestur 18.4.2023 – 1Kon 1.32–40
Þessu næst skipaði Davíð konungur: „Kallið til mín Sadók prest, Natan spámann og Benaja Jójadason.“ Þeir gengu fyrir konung og hann sagði við þá: „Takið með ykkur þjóna herra ykkar, [...]