Biblíulestur 14. mars – Slm 118.1–14
Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
Það mæli Ísrael
því að miskunn hans varir að eilífu.
Það mæli Arons ætt
því að miskunn hans varir að eilífu.
Það mæli þeir sem óttast Drottin
því að miskunn hans varir að eilífu.
Í þrengingunni ákallaði ég Drottin,
hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.
Drottinn er með mér, ég óttast eigi,
hvað geta menn gert mér?
Drottinn er með mér, hann hjálpar mér
og ég get hlakkað yfir hatursmönnum mínum.
Betra er að leita hælis hjá Drottni
en að treysta mönnum,
betra er að leita skjóls hjá Drottni
en að treysta tignarmönnum.
Framandi þjóðir umkringdu mig
en í nafni Drottins hef ég sigrað þær.
Þær umkringdu mig á alla vegu
en ég sigraði þær í nafni Drottins.
Þær umkringdu mig eins og býflugnasveimur,
fuðruðu upp eins og eldur í þyrnum,
en í nafni Drottins hef ég sigrað þær.
Mér var hrint og var nærri fallinu
en Drottinn veitti mér lið.
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
hann varð mér til hjálpræðis.
Biblíulestur 29. apríl – Okv 14.1–19
Viska kvennanna reisir húsið en fíflska þeirra rífur það niður með berum höndum. Sá sem breytir rétt óttast Drottin en sá sem fyrirlítur hann fer villur vegar. Í munni heimskingjans [...]
Biblíulestur 28. apríl – Lúk 5.1–11
Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru [...]
Biblíulestur 27. apríl – 1Kor 15.35–58
En nú kynni einhver að spyrja: „Hvernig rísa dauðir upp? Hvaða líkama hafa þeir þegar þeir koma?“ Heimskulega spurt! Það sem þú sáir lifnar ekki aftur nema það deyi. Og [...]
Biblíulestur 26. apríl – 1Kor 15.20–34
En nú er Kristur upprisinn frá dauðum, frumgróði þeirra sem sofnuð eru. Eins og dauðinn kom með manni, þannig kemur upprisa dauðra með manni. Eins og allir deyja vegna sambands [...]
Biblíulestur 25. apríl – 1Kor 15.1–19
Ég minni ykkur, systkin, á fagnaðarerindið sem ég boðaði ykkur, sem þið og veittuð viðtöku og þið standið einnig stöðug í. Það mun og frelsa ykkur ef þið haldið fast [...]
Biblíulestur 24. apríl – Esk 37.1–14
Hönd Drottins kom yfir mig. Hann leiddi mig burt í anda sínum og lét mig nema staðar í dalbotninum miðjum. Hann var þakinn beinum. Hann leiddi mig umhverfis þau á [...]