Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur
í borg Guðs vors.
Hans heilaga fjall, sem gnæfir hátt og fagurt,
er allri jörðu gleði,
Síonarfjall yst í norðri,
borg hins mikla konungs.
Guð hefur í höllum hennar
kunngjört sig sem vígi
því að konungar söfnuðust saman,
sóttu fram allir sem einn.
Þegar þeir litu upp urðu þeir agndofa,
skelfdust og flýðu.
Þar greip þá felmtur
sem angist jóðsjúka konu.
Með austanvindinum brýtur þú Tarsisskipin.
Það sem vér áður heyrðum höfum vér nú séð
í borg Drottins hersveitanna, borg Guðs vors.
Guð lætur hana standa að eilífu. (Sela)
Vér ígrundum, Guð, elsku þína
í musteri þínu.
Eins og nafn þitt, Guð, hljómar lofgjörð um þig
allt til endimarka jarðar.
Hægri hönd þín er full réttlætis.
Síonarfjall gleðst,
Júdadætur fagna
vegna dóma þinna.
Gangið umhverfis Síon,
gangið kringum hana,
teljið turna hennar,
skoðið borgarmúrana vandlega,
virðið fyrir yður virkin
svo að þér getið sagt komandi kynslóð
að þannig sé Drottinn, Guð vor,
hann mun leiða oss um aldur og ævi.