Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 20. mars – Hlj 3.21–41

En þetta vil ég hugfesta
og þess vegna vona ég:
Náð Drottins er ekki þrotin,
miskunn hans ekki á enda,
hún er ný á hverjum morgni,
mikil er trúfesti þín.
Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín,
þess vegna vona ég á hann.
Góður er Drottinn þeim er á hann vona
og þeim manni er til hans leitar.
Gott er að bíða hljóður
eftir hjálp Drottins.
Gott er fyrir manninn
að bera ok í æsku.
Hann sitji einn og hljóður
þegar Drottinn hefur lagt það á hann.
Hann liggi með munninn við jörðu,
vera má að enn sé von,
hann bjóði þeim vangann sem slær hann,
láti metta sig smán.
Því að ekki útskúfar Drottinn
um alla eilífð.
Þótt hann valdi harmi miskunnar hann
af mikilli náð sinni.
Því að viljandi hrjáir hann ekki
né hrellir mannanna börn.
Að troða undir fótum
alla bandingja landsins,
að halla rétti manns
fyrir augliti Hins hæsta,
að beita mann ranglæti í máli hans,
skyldi Drottinn ekki sjá það?
Hver er sá sem bauð og það varð
án þess að Drottinn hafi ákveðið það?
Gengur ekki fram af munni Hins hæsta
bæði gæfa og ógæfa?
Hví skyldi nokkur lifandi maður kvarta
sem refsað er fyrir syndir sínar?
Rannsökum breytni vora og prófum
og snúum aftur til Drottins.
Fórnum hjarta og höndum
til Guðs í himninum.

Biblíulestur 9. júní – Okv 8.22–36

Drottinn skapaði mig í upphafi, á undan öðrum verkum sínum, í árdaga. Fyrir óralöngu var ég mynduð, í upphafi, áður en jörðin varð til. Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu [...]

Biblíulestur 8. júní – Okv 8.1–21

Heyr, spekin kallar. Viskan hefur upp raust sína. Uppi á hæðunum, við veginn og við krossgöturnar stendur hún, við hliðin út úr borginni, þar sem gengið er inn, kallar hún [...]

Biblíulestur 4. júní – Matt 11.25–27

Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, [...]

Fara efst