Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 21. mars – Slm 118.15–29

Fagnaðar- og siguróp kveða við í tjöldum réttlátra:
„Hægri hönd Drottins vinnur máttarverk,
hægri hönd Drottins er upphafin,
hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.“
Ég mun eigi deyja heldur lifa
og kunngjöra dáðir Drottins.
Drottinn hefur hirt mig harðlega
en eigi ofurselt mig dauðanum.
Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins
að ég megi ganga inn um þau og lofa Drottin.
Þetta er hlið Drottins,
réttlátir ganga þar inn.
Ég þakka þér að þú bænheyrðir mig
og komst mér til hjálpar.
Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu,
er orðinn að hyrningarsteini.
Að tilhlutan Drottins er þetta orðið,
það er dásamlegt í augum vorum.
Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði,
fögnum og verum glaðir á honum.
Drottinn, hjálpa þú,
Drottinn, gef þú gengi.
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
frá húsi Drottins blessum vér yður.
Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós,
fylkið yður með laufgreinum
að hornum altarisins.
Þú ert Guð minn, ég þakka þér,
Guð minn, ég vegsama þig.
Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.

Biblíulestur 15. júní – Esk 11.15–25

Mannssonur, allir bræður þínir, nánustu skyldmenni þín og allir aðrir Ísraelsmenn eru þeir sem íbúar Jerúsalem segja um: „Þeir eru langt frá Drottni, landið var fengið okkur til eignar.“ Segðu [...]

Biblíulestur 14. júní – Ef 4.1–16

Ég, bandinginn vegna Drottins, áminni ykkur þess vegna um að hegða ykkur svo sem samboðið er þeirri köllun sem þið hafið hlotið. Verið í hvívetna lítillát og hógvær. Verið þolinmóð, [...]

Biblíulestur 11. júní – Lúk 12.13–21

Einn úr mannfjöldanum sagði við Jesú: „Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum.“ Hann svaraði honum: „Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?“ Og [...]

Fara efst