Biblíulestur 26. febrúar – Opb 18.1–10
Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni og hafði hann mikið vald og jörðin ljómaði af dýrð hans. Og hann hrópaði með sterkri röddu: „Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla og orðin að heimkynni djöfla og hæli alls konar óhreinna anda og óhreinna og viðbjóðslegra fugla. Því að hún hefur látið allar þjóðir drekka af lostavíni saurlífis síns sem vekur reiði Guðs, og konungar jarðarinnar drýgðu saurlifnað með henni og kaupmenn jarðarinnar auðguðust af taumlausum munaði hennar.“
Og ég heyrði aðra rödd af himni sem sagði: „Fólkið mitt, forðið yður úr borginni, svo að þér eigið engan hlut í syndum hennar og hreppið ekki plágur hennar. Því að syndir hennar náðu allt upp til himins og Guð minntist ranglætisverka hennar. Komið fram við hana eins og hún hefur komið fram við yður og látið hana fá tvöfalt fyrir það sem hún hefur gert. Byrlið henni tvöfalt í bikarinn sem hún hefur byrlað yður í. Veitið henni eins mikla kvöl og sorg og hennar stærilæti og óhóf hefur verið. Hún segir í hjarta sínu: Hér sit ég og er drottning, ekkja er ég eigi, sorg mun ég aldrei sjá. Þess vegna munu plágur hennar koma á einum degi: Dauði, sorg og hungur og í eldi mun hún verða brennd því að máttugur er Drottinn Guð sem dæmdi hana.“
Konungar jarðarinnar, sem drýgðu með henni saurlifnað og lifðu í munaði, munu gráta og kveina yfir henni er þeir sjá reykinn þegar hún brennur. Af ótta fyrir kvöl hennar munu þeir standa langt frá og segja: „Vei, vei, borgin mikla, Babýlon, borgin volduga, á einni stundu kom dómur þinn.“
Biblíulestur 8. september – Lúk 18.28–30
Þá sagði Pétur: „Við yfirgáfum allt sem við áttum og fylgdum þér.“ Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég yður að enginn hefur yfirgefið heimili, konu, bræður, foreldra eða börn [...]
Biblíulestur 7. september – 1Mós 19.12–18
Mennirnir spurðu Lot: „Hverja aðra átt þú þér nákomna hér? Tengdasyni, syni, dætur eða aðra sem þú átt að í borginni skaltu hafa á burt héðan. Við munum tortíma þessum [...]
Biblíulestur 7. september – Slm 80.1–8
Hirðir Ísraels, hlýð á, þú, sem leiðir Jósef eins og hjörð. Þú, sem ríkir yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð fyrir Efraím, Benjamín og Manasse. Vek upp kraft þinn og [...]
Biblíulestur 6. september – 1Mós 19.1–11
Englarnir tveir komu til Sódómu um kvöldið og sat þá Lot í borgarhliðinu. Og er hann sá þá stóð hann upp til þess að heilsa þeim og hneigði ásjónu sína [...]
Biblíulestur 6. september – Job 31.16–32
Hafi ég synjað bón þurfandi manns og gert augu ekkjunnar döpur, hafi ég borðað bitann minn einn án þess að deila honum með munaðarleysingjanum, nei, frá barnæsku hef ég verið [...]
Biblíulestur 5. september – 1Mós 18.16–33
Mennirnir tóku sig nú upp þaðan og horfðu í átt til Sódómu. Abraham ætlaði að fylgja þeim áleiðis. Þá mælti Drottinn: „Hví ætti ég að dylja Abraham þess sem ég [...]