Biblíulestur 27. febrúar – Opb 18.11–20
Og kaupmenn jarðarinnar gráta og harma yfir henni því að enginn kaupir nú framar vörur þeirra, farma af gulli og silfri, gimsteinum og perlum, dýru líni og purpura, silki og skarlati, og alls konar ilmvið og alls konar muni af fílabeini og eðalviði, af eiri, járni og marmara, og kanelbörk og balsam, ilmjurtir og smyrsl, reykelsi, vín og olíu og fínt mjöl og hveiti og uxa og sauði og hesta og vagna og þræla og mannslíf. Ágóðinn, sem þú þráðir svo heitt, hefur brugðist þér, öll sæld og glys þér horfið og enginn mun neitt af því finna framar. Kaupmennirnir, sem seldu þessa hluti og auðguðust á henni, munu standa álengdar af ótta yfir kvöl hennar, grátandi og harmandi og segja: „Vei, vei, borgin mikla, sem klæddist dýru líni, purpura og skarlati og var prýdd gulli og gimsteinum og perlum. Á einni stundu eyddist allur þessi auður.“ Og allir skipstjórar, allir sjófarendur og hásetar og allir þeir sem atvinnu reka á sjónum stóðu álengdar. Þegar þeir sáu reykinn af brennandi borginni hrópuðu þeir: „Hvaða borg jafnast á við borgina miklu?“ Og þeir jusu mold yfir höfuð sér og hrópuðu grátandi og harmandi: „Vei, vei, borgin mikla, sem allir þeir er skip eiga á sjónum auðguðust á vegna auðæfa hennar. Á einni stundu var hún í eyði lögð.“ Fagna yfir henni, þú himinn og þér heilögu, postular og spámenn, því að Guð hefur hefnt yðar á henni.
Biblíulestur 11. september – Jes 28.16–23
Þess vegna segir Drottinn Guð: Sjá, ég legg undirstöðustein á Síon, traustan stein, valinn hornstein. Sá sem trúir flýr ekki. Ég geri réttinn að mælivað og réttlætið að mælilóði. Þá [...]
Biblíulestur 10. september – Jóh 5.1–15
Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru fimm súlnagöng. Í þeim [...]
Biblíulestur 10. september – Am 8.4–14
Heyrið þetta, þér sem troðið fátæklingana niður og gerið út af við þurfamenn í landinu. Þér sem spyrjið: „Hvenær tekur tunglkomuhátíðin enda svo að vér getum haldið áfram að selja [...]
Biblíulestur 9.9.2023 – Slm 59.1–8
Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann. Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð [...]
Biblíulestur 9. september – Jer 5.20–31
Kunngjörið meðal Jakobs niðja, boðið í Júda og segið: Hlýddu á, heimska og skilningslausa þjóð, sem hefur augu en sérð ekki, eyru en heyrir ekki: Óttist þér mig eigi? segir [...]
Biblíulestur 8. september – Jes 28.1–15
Vei hinum drembilega blómsveig drykkjurútanna í Efraím, hinu bliknaða blómi, hinni dýrlegu prýði hans á hæðarkollinum í hinum frjósama dal þar sem vínið lagði þá að velli. Hetja Drottins, sterk [...]