Heyr kvein mitt, Guð,
hlusta á bæn mína.
Ég hrópa til þín frá endimörkum jarðar
því að hjarta mitt örvæntir.
Hef mig upp á bjarg það sem mér er of hátt
því að þú ert mér hæli,
traust vígi gegn óvinum.
Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð,
eiga athvarf í skjóli vængja þinna (Sela)
því að þú, Guð, hefur heyrt heit mitt,
fengið þeim erfðahlut sem óttast nafn þitt.
Þú lengir lífdaga konungs,
lát ár hans vara frá kyni til kyns.
Hann skal um eilífð sitja í hásæti frammi fyrir Guði,
lát miskunn og trúfesti varðveita hann.
Þá vil ég syngja nafni þínu lof um aldur,
efna heit mín alla daga.