Biblíulestur 6. maí – Mrk 6.30–44
Postularnir komu nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því er þeir höfðu gert og kennt. Hann sagði við þá: „Komið nú á óbyggðan stað, svo að við séum einir saman, og hvílist um stund.“ En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.
Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað. Menn sáu þá fara og margir þekktu þá og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim. Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt. Þá er mjög var áliðið dags komu lærisveinarnir að máli við Jesú og sögðu: „Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið. Lát fólkið fara svo að það geti náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar.“
En Jesús svaraði þeim: „Gefið því sjálfir að eta.“
Þeir svara honum: „Eigum við að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara og gefa því að eta?“
Jesús spyr þá: „Hve mörg brauð hafið þið? Farið og gætið að.“
Þeir hugðu að og svöruðu: „Fimm brauð og tvo fiska.“
Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa. Fólkið settist niður í flokkum, hundrað í sumum en fimmtíu í öðrum.
Og Jesús tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra. Og allir neyttu og urðu mettir. Þeir tóku saman brauðbitana er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar. En þeir sem brauðanna neyttu voru fimm þúsund karlmenn.
Biblíulestur 21. febrúar – Jóh 1.14–18, 29–34
Jóhannes vitnar um hann og hrópar: „Þetta er sá sem ég átti við þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig var á undan mér enda fyrri en ég.“ Af [...]
Biblíulestur 20. febrúar – Mrk 7.1–23
Nú safnast að Jesú farísear og nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem. Þeir sáu að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum, höndum. En farísear, og reyndar Gyðingar [...]
Biblíulestur 19. febrúar – 2Kon 5.1–16
Naaman, hershöfðingi konungsins í Aram, var í miklum metum hjá húsbónda sínum og í hávegum hafður því að Drottinn hafði veitt Aram sigur undir stjórn hans. Þessi maður var mikil [...]
Biblíulestur 18. febrúar – Lúk 10.17–20
Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“ En Jesús mælti við þá: „Ég sá [...]
Biblíulestur 17. febrúar – Slm 70.1–6
Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar. Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með [...]
Biblíulestur 16. febrúar – Post 3.12–26
Þegar Pétur sá það ávarpaði hann fólkið: „Ísraelsmenn, hví furðar ykkur á þessu eða hví starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið því [...]