Biblíulestur 5. maí – Mrk 6.14–29
Heródes konungur frétti þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: „Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk.“
Aðrir sögðu: „Hann er Elía,“ enn aðrir: „Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu.“
Þegar Heródes heyrði þetta sagði hann: „Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.“
En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana en Jóhannes hafði sagt við Heródes: „Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.“
Þess vegna lagði Heródías fæð á Jóhannes og vildi deyða hann en gat ekki því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að hlusta á hann.
En nú kom hentugur dagur. Á afmæli sínu gerði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu. Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: „Bið mig hvers þú vilt og mun ég veita þér.“
Og Heródes sór henni: „Hvað sem þú biður um það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns.“
Hún gekk þá út og spurði móður sína: „Um hvað á ég að biðja?“
Hún svaraði: „Höfuð Jóhannesar skírara.“
Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: „Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara.“
Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gesta sinna vildi hann ekki synja henni þessa heldur sendi þegar böðul og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu, kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni en stúlkan móður sinni. Þegar lærisveinar hans fréttu þetta komu þeir, tóku lík Jóhannesar og lögðu í gröf.
Biblíulestur 15. febrúar – Mal 3.16–24
Um þetta töluðu þeir hver við annan, sem óttuðust Drottin, og Drottinn hlýddi á með athygli. Frammi fyrir honum var skrifuð bók til að minna á alla sem óttast Drottin [...]
Biblíulestur 14. febrúar – Matt 6.16–21
Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið [...]
Biblíulestur 13. febrúar – Mal 2.17–3.5
Þið þreytið Drottin með orðum ykkar. Þið spyrjið: „Með hverju þreytum við hann?“ Með því að segja: „Sérhver illvirki er góður í augum Drottins, honum þykir vænt um slíka menn,“ [...]
Biblíulestur 12. febrúar – Jes 43.1–13
En nú segir Drottinn svo, sá sem skóp þig, Jakob, og myndaði þig, Ísrael: Óttast þú ekki því að ég frelsa þig, ég kalla á þig með nafni, þú ert [...]
Biblíulestur 11. febrúar – Jóh 12.23–36
Jesús svaraði þeim: „Stundin er komin að dýrð Mannssonarins verði opinber. Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef [...]
Biblíulestur 10. febrúar – Slm 69.20–37
Þú þekkir háðung mína, skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum. Háðungin kramdi hjarta mitt svo að ég örvænti. Ég vonaði að einhver sýndi meðaumkun en þar [...]