Biblíulestur 22. mars – Mrk 10.35–45
Þá komu til Jesú Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: „Meistari, okkur langar að þú gerir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.“
Hann spurði þá: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“
Þeir svöruðu: „Veit okkur að við fáum að sitja þér við hlið í dýrð þinni, annar til hægri handar þér og hinn til vinstri.“
Jesús sagði við þá: „Þið vitið ekki hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn sem ég skírist?“
Þeir sögðu við hann: „Það getum við.“
Jesús mælti: „Þann kaleik, sem ég drekk, munuð þið drekka og þið munuð skírast þeirri skírn sem ég skírist. En ég ræð því ekki hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim sem það er fyrirbúið.“
Þegar hinir tíu heyrðu þetta gramdist þeim við þá Jakob og Jóhannes. En Jesús kallaði þá til sín og mælti: „Þið vitið að þeir sem teljast ráða fyrir þjóðum drottna yfir þeim og höfðingjar þeirra láta menn kenna á valdi sínu.
En eigi sé svo meðal ykkar heldur sé sá sem mikill vill verða meðal ykkar þjónn ykkar. Og sá er vill fremstur vera meðal ykkar sé allra þræll. Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.“
Biblíulestur 12. janúar – 2Sam 12.15–25
Síðan fór Natan heim til sín. Drottinn lét drenginn, sem kona Hetítans Úría ól Davíð, veikjast. Davíð sneri sér þá til Drottins vegna drengsins. Hann lagði á sig stranga föstu, [...]
Biblíulestur 11. janúar – 3Mós 23.27–38
Á tíunda degi í þessum sama sjöunda mánuði er friðþægingardagurinn. Þá skuluð þið halda helga samkomu, leggja á ykkur líkamleg meinlæti og færa Drottni eldfórn. Þennan dag skuluð þið ekkert [...]
Biblíulestur 10. janúar – Jóh 6.60–71
Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: „Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?“ Jesús vissi með sjálfum sér að kurr var með lærisveinum hans út af [...]
Biblíulestur 9. janúar – Jóh 6.36–44
En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki. Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun [...]
Biblíulestur 8. janúar – Hós 6.1–6
Komið, hverfum aftur til Drottins því að hann reif sundur en mun lækna oss, hann særði en mun gera að sárunum. Hann lífgar oss eftir tvo daga, á þriðja degi [...]
Biblíulestur 7. janúar – Lúk 3.15–17, 21–22
Allir voru nú fullir eftirvæntingar og hugsuðu með sjálfum sér hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur [...]