Biblíulestur 17. maí – Jóh 17.9–17
Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér því að þeir eru þínir og allt mitt er þitt og þitt er mitt. Í þeim er ég dýrlegur orðinn. Ég er ekki lengur í heiminum. Þeir eru í heiminum en ég kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því nafni sem þú hefur gefið mér, svo að þeir verði eitt eins og við. Meðan ég var hjá þeim varðveitti ég þá í nafni þínu sem þú hefur gefið mér, og gætti þeirra og enginn þeirra glataðist nema sonur glötunarinnar svo að ritningin rættist. Nú kem ég til þín. Þetta tala ég í heiminum til þess að þeir eigi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn. Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Ég bið ekki að þú takir þá úr heiminum heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa. Þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur.
Biblíulestur 27. apríl – Okv 17.19–28
Sá sem ann þrætum sækir í yfirsjón, sá sem gerir þröskuld sinn háan hnýtur um hann. Hinn meinfýsni öðlast enga gæfu og sá sem fer með lygar ratar í vanda. [...]
Biblíulestur 26. apríl – 1Kor 4.1–16
Þannig líti menn á okkur sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs. Nú er þess krafist af ráðsmönnum að sérhver reynist trúr. En mér er það fyrir minnstu að [...]
Biblíulestur 25. apríl – Lúk 17.11–19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. [...]
Biblíulestur 24. apríl – Róm 12.1–8
Því brýni ég ykkur, systkin, að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi. Fylgið ekki háttsemi [...]
Biblíulestur 23. apríl – Matt 13.10–17
Þá komu lærisveinarnir til hans og spurðu: „Hvers vegna talar þú til fólksins í dæmisögum?“ Hann svaraði: „Ykkur er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, öðrum er það ekki gefið. [...]
Biblíulestur 22. apríl – Okv 11.24–31
Einn miðlar öðrum af örlæti og eignast æ meira, annar heldur í meira en rétt er og verður þó enn snauðari. Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun og sá sem gefur [...]