Biblíulestur 18. maí – Heb 1.1–14
Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti erfingja allra hluta. Fyrir hann hefur hann líka heimana gert. Hann, sem er ljómi dýrðar hans og ímynd veru hans og ber allt með orði máttar síns, hreinsaði okkur af syndum okkar og settist til hægri handar hátigninni á hæðum.
Hann er orðinn englunum þeim mun meiri sem hann hefur að erfðum tekið ágætara nafn en þeir. Því við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt:
Þú ert sonur minn,
í dag hef ég fætt þig?
Eða:
Ég vil vera honum faðir
og hann skal vera mér sonur?
Og aftur er hann leiðir frumburðinn inn í heimsbyggðina segir hann:
Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.
Og um englana segir hann:
Hann sem gerir engla sína að vindum
og þjóna sína að eldslogum.
En um soninn:
Hásæti þitt, Guð, er um aldir alda
og sproti réttvísinnar er sproti ríkis þíns.
Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti.
Því hefur Guð, þinn Guð,
smurt þig gleðinnar olíu fram yfir þína jafningja.
Og:
Þú, Drottinn, hefur í upphafi grundvallað jörðina
og himnarnir eru verk handa þinna.
Þeir munu farast en þú varir.
Allir munu þeir fyrnast sem fat
og þú munt þá saman vefja eins og möttul,
um þá verður skipt sem klæði.
En þú ert hinn sami og þín ár taka aldrei enda.
En við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt:
Set þig mér til hægri handar
uns ég geri óvini þína að fótskör þinni?
Eru þeir ekki allir andar sem þjóna Guði, sendir til að hjálpa þeim sem hjálpræðið eiga að erfa?
Biblíulestur 3. maí – Jl 4.13–21
Bregðið sigðinni, vínberin eru fullþroskuð. Komið og troðið. Svo full er vínþróin að lagarkerin flóa yfir. Svo mikil er illska þeirra. Mannþröng, mannsægur í Dal dómsins. Nálægur er dagur Drottins [...]
Biblíulestur 2. maí – Job 38.22–38
Hefurðu komið að forðabúri snævarins og séð geymslur haglsins sem ég geymi til þrengingatíma, til orrustu- og ófriðardags? Hvar er vegurinn þangað sem ljósinu er dreift og austanvindurinn tvístrast um [...]
Biblíulestur 1. maí – Job 14.1–15
Maður, af konu fæddur, lifir fáa ævidaga, fulla af eirðarleysi. Hann vex eins og blóm og visnar, hverfur sem hvikull skuggi. Samt hefurðu á honum vakandi auga og kallar hann [...]
Biblíulestur 30. apríl – Fil 3.12–4.1
Ekki er svo að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður [...]
Biblíulestur 29. apríl – Fil 3.1–11
Enn og aftur, bræður mínir og systur, verið glöð í Drottni. Ég tel ekki eftir mér að endurtaka það sem ég hef skrifað en ykkur er það fyrir bestu. Varist [...]
Biblíulestur 28. apríl – Jóh 8.25–30
Fólkið spurði hann þá: „Hver ert þú?“ Jesús svaraði því: „Sá sem ég hef sagt yður frá upphafi. Margt hef ég um yður að tala og fyrir margt að dæma. [...]