Biblíulestur 16. maí – Slm 119.65–80
Þú hefur gert vel til þjóns þíns
eftir orði þínu, Drottinn.
Veit mér dómgreind og þekkingu
því að ég treysti boðum þínum.
Áður en ég varð auðmjúkur villtist ég
en nú varðveiti ég orð þitt.
Þú ert góður og gerir vel,
kenn mér lög þín.
Hrokafullir spinna upp lygar gegn mér
en ég fylgi boðum þínum af öllu hjarta.
Hjarta þeirra er sljótt og feitt
en ég hef yndi af lögmáli þínu.
Það varð mér til góðs að ég var beygður
svo að ég gæti lært lög þín.
Lögmálið úr munni þínum er mér mætara
en þúsundir skildinga úr silfri og gulli.
Hendur þínar sköpuðu mig og mótuðu,
veit mér skilning til að læra boð þín.
Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast
því að ég vona á orð þitt.
Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir,
að þú auðmýktir mig í trúfesti þinni.
Lát náð þína verða mér til huggunar
eins og þú hefur heitið þjóni þínum.
Sendu mér miskunn þína, að ég megi lifa,
því að lögmál þitt er unun mín.
Lát hrokagikkina verða til skammar
sem þjaka mig að ósekju
en ég íhuga fyrirmæli þín.
Þeir snúi sér til mín sem óttast þig
og þekkja fyrirmæli þín.
Gef mér að fylgja lögum þínum af heilu hjarta
svo að ég verði eigi til skammar.
Biblíulestur 21. apríl – Jóh 15.1–8
„Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. Hverja þá grein á mér sem ber ekki ávöxt sníður hann af og hverja þá sem ávöxt ber hreinsar hann [...]
Biblíulestur 20. apríl – Slm 73.13–28
Til einskis hef ég haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi. Ég þjáist allan daginn og á hverjum morgni bíður mín hirting. Hefði ég hugsað: „Ég vil [...]
Biblíulestur 19. apríl – Kól 3.1–17
Fyrst þið því eruð uppvakin með Kristi, þá keppist eftir því sem er hið efra þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. Hugsið um það sem er hið efra [...]
Biblíulestur 18. apríl – Kól 2.6–23
Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. Verið rótfest í honum og byggð á honum, staðföst í trúnni, eins og ykkur hefur verið kennt, og [...]
Biblíulestur 17. apríl – Mrk 10.17–31
Þegar Jesús var að leggja af stað kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft [...]
Biblíulestur 16. apríl – Mrk 9.2–13
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum [...]