Biblíulestur – 19. júní – Jóh 18.28–40
Menn æðsta prestsins fóru nú með Jesú frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Þeir fóru ekki sjálfir inn í höllina svo að þeir saurguðust ekki heldur mættu neyta páskamáltíðar. Pílatus kom út til þeirra og sagði: „Hvaða ákæru berið þið fram gegn þessum manni?“
Þeir svöruðu: „Ef þetta væri ekki illvirki hefðum við ekki selt hann þér í hendur.“
Pílatus segir við þá: „Takið þið hann og dæmið hann eftir ykkar lögum.“
Þeir svöruðu: „Okkur leyfist ekki að taka neinn af lífi.“ Þannig rættist orð Jesú þegar hann gaf til kynna með hvaða hætti hann ætti að deyja.
Pílatus gekk þá aftur inn í höllina, kallaði Jesú fyrir sig og sagði við hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Eru þetta þín orð eða hafa aðrir sagt þér frá mér?“
Pílatus svaraði: „Er ég þá Gyðingur? Þjóð þín og æðstu prestarnir hafa selt þig mér í hendur. Hvað hefur þú gert?“
Jesús svaraði: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi hefðu þjónar mínir barist svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.“
Þá segir Pílatus við hann: „Þú ert þá konungur?“
Jesús svaraði: „Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er sannleikans megin heyrir mína rödd.“
Pílatus segir við hann: „Hvað er sannleikur?“
Að svo mæltu gekk hann aftur út til Gyðinga og sagði við þá: „Ég finn enga sök hjá honum. Þið eruð vanir því að ég gefi ykkur einn mann lausan á páskunum. Viljið þið nú að ég gefi ykkur lausan konung Gyðinga?“
Þeir hrópuðu á móti: „Ekki hann heldur Barabbas.“ En Barabbas var ræningi.
Biblíulestur 30. október – Esk 40.1-16
Nýtt musteri 1 Í ársbyrjun, tíunda dag mánaðarins á tuttugasta og fimmta árinu frá því að við vorum fluttir í útlegð, á fjórtánda ári eftir fall borgarinnar, einmitt þann dag [...]
Biblíulestur 29. október – Dóm 10.1-18
Tóla og Jaír 1 Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódósonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímsfjöllum 2 og var dómari í Ísrael [...]
Biblíulestur 28. október – Matt 18.21-35
Hve oft? 21 Þá gekk Pétur til hans og spurði: „Drottinn, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum ef hann misgerir við mig? Svo sem sjö sinnum?“ 22 Jesús [...]
Biblíulestur 27. október – Okv 20.1-15
1Vínið er illkvittið, sterkur drykkur glaumsamur, fávís verður sá sem lætur leiðast afvega. 2Reiði konungs er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann gegn sér hættir lífi sínu. 3Það er [...]
Biblíulestur 26. október – Dóm 9.42-57
42 En daginn eftir fór fólkið út á akurinn og sögðu menn Abímelek frá þessu. 43 Þá tók hann lið sitt, skipti því í þrjár sveitir og leyndist á akrinum. [...]
Biblíulestur 25. október – Dóm 9.22-41
22 Abímelek réð nú fyrir Ísrael í þrjú ár. 23 Þá sendi Guð anda sundurþykkis milli Abímeleks og Síkembúa, svo að Síkembúar brugðu trúnaði við Abímelek, 24 til þess að [...]