Biblíulestur – 30. júní – Jóh 21.1–14
Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn af lærisveinum hans. Símon Pétur segir við þá: „Ég fer að fiska.“
Þeir segja við hann: „Við komum líka með þér.“ Þeir fóru og stigu í bátinn. En þá nótt fengu þeir ekkert.
Þegar dagur rann stóð Jesús á ströndinni. Lærisveinarnir vissu samt ekki að það var Jesús. Jesús segir við þá: „Drengir, hafið þið nokkurn fisk?“
Þeir svöruðu: „Nei.“
Hann sagði: „Kastið netinu hægra megin við bátinn og þið munuð verða varir.“ Þeir köstuðu og nú gátu þeir ekki dregið netið, svo mikill var fiskurinn. Lærisveinninn, sem Jesús elskaði, segir við Pétur: „Þetta er Drottinn.“ Þegar Símon Pétur heyrði að það væri Drottinn brá hann yfir sig flík – hann var fáklæddur – og stökk út í vatnið. En hinir lærisveinarnir komu á bátnum, enda voru þeir ekki lengra frá landi en svo sem tvö hundruð álnir, og drógu netið með fiskinum.
Þegar þeir stigu á land sáu þeir fisk lagðan á glóðir og brauð.
Jesús segir við þá: „Komið með nokkuð af fiskinum sem þið voruð að veiða.“
Símon Pétur fór í bátinn og dró netið á land, fullt af stórum fiskum, eitt hundrað fimmtíu og þremur. Og netið rifnaði ekki þótt þeir væru svo margir.
Jesús segir við þá: „Komið og matist.“ En enginn lærisveinanna dirfðist að spyrja hann: „Hver ert þú?“ Enda vissu þeir að það var Drottinn. Jesús kemur og tekur brauðið og gefur þeim, svo og fiskinn. Þetta var í þriðja sinn sem Jesús birtist lærisveinum sínum upp risinn frá dauðum.
Biblíulestur 4. janúar – 2Mós 7.14-25
Fyrsta plágan: Vatn breytist í blóð 14 Drottinn sagði við Móse: „Hjarta faraós er ósveigjanlegt, hann neitar að sleppa fólkinu. 15 Farðu til faraós í fyrramálið þegar hann gengur niður [...]
Biblíulestur 3. janúar – 2Mós 6.26-7.13
6. kafli Aron spámaður Móse 26 Það voru Aron og Móse sem Drottinn sagði við: „Leiðið Ísraelsmenn út úr Egyptalandi fylktu liði.“ 27 Það voru þeir sem töluðu við faraó, [...]
Biblíulestur 2. janúar – 2Mós 6.2-25
Önnur frásögn af köllun Móse 2 Guð ávarpaði Móse og sagði við hann: „Ég er Drottinn. 3 Ég birtist Abraham, Ísak og Jakobi sem almáttugur Guð [ en undir nafninu [...]
Biblíulestur á nýársdag – Jóh. 2.23-25
23 Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði. 24 En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn [...]
Biblíulestur 31. desember – Lúk 12.35-40 – Gamlársdagur
Verið viðbúnir 35 Verið vel tygjaðir[ og látið ljós yðar loga 36 og verið líkir þjónum er bíða þess að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp [...]
Biblíulestur 30. desember – Lúk 2.22-33
Jesús færður Drottni 22 En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, 23 en svo er ritað [...]