Verið viðbúnir

35 Verið vel tygjaðir[ og látið ljós yðar loga 36 og verið líkir þjónum er bíða þess að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra. 37 Sælir eru þeir þjónar sem húsbóndinn finnur vakandi er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun búa sig,[ láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim. 38 Og komi hann um miðnætti eða síðar[ og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá. 39 Það skiljið þér að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu þjófurinn kæmi. 40 Verið þér og viðbúnir því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi.“