Biblíulestur – 6. júlí – Lúk 15.1–10
Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“
En Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim sem týndur er þar til hann finnur hann? Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér er hann finnur hann. Þegar hann kemur heim kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: Samgleðjist mér því að ég hef fundið sauðinn minn sem týndur var. Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem tekur sinnaskiptum, en yfir níutíu og níu réttlátum sem þurfa þess ekki við.
Eða kona sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega uns hún finnur hana? Og er hún hefur fundið hana kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: Samgleðjist mér því að ég hef fundið drökmuna sem ég týndi. Þannig segi ég yður að englar Guðs munu gleðjast yfir einum syndara sem bætir ráð sitt.“
Biblíulestur 7. október – Jak 1.1-18
Þolgæði, trú og bæn 1 Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni. 2 Kæri söfnuður,[ álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss [...]
Biblíulestur 6. október – Jóh 11.1, 3, 17-27
1 Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. ... 3 Nú gerðu systurnar Jesú orðsending: „Drottinn, sá sem þú elskar er sjúkur.“ [...]
Biblíulestur 5. október – Slm 78.1-8
1 Asafsmaskíl. Hlýð þú, þjóð mín, á kenningu mína, legg eyrun að ræðu munns míns. 2Ég vil opna munn minn með líkingu og túlka liðna tíð. 3Það sem vér höfum [...]
Biblíulestur 4. október – Nahúm 3.12-19
12Öll virki þín eru sem fíkjutré sem bera vorfíkjur. Séu þau hrist falla þær í munn hvers sem vill. 13Hermenn þínir eru sem konur, hlið lands þíns hafa lokið sér [...]
Biblíulestur 3. október – Nahúm 3.8-11
8Er þér, Níníve, vandara um en Nó-Ammón sem lá við Nílarfljót, umflotin vatni, og átti sér fljótið að vígi og vatnið að varnarvirki? 9Styrk sinn sótti hún til Eþíópíumanna og [...]
Biblíulestur 2. október – Nahúm 2.12-3.7
2. kafli 12Hvar er nú bæli ljónanna, hvar hellir ljónshvolpanna þar sem ljónið gekk óáreitt, ljónynjan og hvolparnir? 13Þar sem ljónið tætti sundur bráðina svo að hvolparnir fengju fylli sína, [...]