Biblíulestur 19. nóvember – 2Kon 20.12-21

2019-06-13T00:56:25+00:00Þriðjudagur 19. nóvember 2019|

Sendiboðar frá Babýlon

12 Um þetta leyti sendi Merodak Baladan Baladansson, konungur í Babýlon, bréf og gjöf til Hiskía af því að hann hafði frétt af veikindum hans. 13 Hiskía gladdist yfir þessu og sýndi sendiboðunum alla fjárhirslu sína, silfrið, gullið, balsamið og úrvalsolíuna, vopnabúr sitt og allt annað sem varðveitt var í fjárhirslu hans. Í höll hans eða ríki var enginn sá hlutur sem hann sýndi þeim ekki.
14 Jesaja spámaður kom þá til Hiskía konungs og spurði: „Hvað vildu þessir menn og hvaðan komu þeir?“ Hiskía svaraði: „Þeir komu frá fjarlægu landi, alla leið frá Babýlon.“ 15 Þá spurði Jesaja: „Hvað sáu þeir í húsi þínu?“ Hiskía svaraði: „Þeir sáu allt sem er í húsi mínu. Í fjárhirslum mínum er enginn sá hlutur sem ég sýndi þeim ekki.“ 16 Þá sagði Jesaja við Hiskía: „Hlýddu á orð Drottins: 17 Sá tími mun koma að allt, sem er í húsi þínu, og allt, sem forfeður þínir hafa safnað til þessa dags, verður flutt til Babýlonar. Ekkert verður eftir, segir Drottinn. 18 Nokkrir af sonum þínum, niðjum þínum, sem þú átt eftir að eignast, verða teknir og gerðir að hirðsveinum í höll Babýloníukonungs.“ 19 Hiskía svaraði Jesaja og sagði: „Gott er það orð sem þú hefur flutt mér frá Drottni.“ En hann hugsaði með sér: „Það verður þó friður og festa á meðan ég lifi.“

Hiskía deyr

20 Það sem ósagt er af sögu Hiskía og afrekum hans, af tjörninni og vatnsleiðslunni, sem hann lét gera, og því hvernig hann lét leiða vatn inn í borgina, er skráð í annála Júdakonunga. 21 Hiskía var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum. Manasse, sonur hans, varð konungur eftir hann.

Title

Fara efst