Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 14. september – Lúk 10.23–37

Og Jesús sneri sér að lærisveinum sínum og sagði einslega við þá: „Sæl eru þau augu sem sjá það sem þér sjáið. Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið en sáu það ekki og heyra það sem þér heyrið en heyrðu það ekki.“
Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista Jesú og mælti: „Meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
Jesús sagði við hann: „Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?“
Hann svaraði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.“
Jesús sagði við hann: „Þú svaraðir rétt. Ger þú þetta og þú munt lifa.“
En lögvitringurinn vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: „Hver er þá náungi minn?“
Því svaraði Jesús svo: „Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona. Svo vildi til að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn en sveigði fram hjá. Eins kom og Levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá. En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum og er hann sá hann kenndi hann í brjósti um hann, gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann. Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meira til skal ég borga þér þegar ég kem aftur.
Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni sem féll í hendur ræningjum?“
Hann mælti: „Sá sem miskunnarverkið gerði á honum.“
Jesús sagði þá við hann: „Far þú og ger hið sama.“

Biblíulestur 19. apríl – Jóh 20.19-31

Jesús birtist lærisveinunum 19 Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og [...]

Biblíulestur 18. apríl – Slm 90.1-17

1 Bæn guðsmannsins Móse. Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns. 2Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, [...]

Biblíulestur 17. apríl – Jer 7.1-15

Musterisræðan 1 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: 2 Taktu þér stöðu við hliðið að húsi Drottins, flyttu þar þessa ræðu og segðu: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, sem [...]

Biblíulestur 16. apríl – Jer 6.16-30

Laun óhlýðninnar 16Svo segir Drottinn: Nemið staðar við vegina og litist um, spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin og farið hana svo að þér finnið sálum yðar hvíld. En [...]

Biblíulestur 15. apríl – Jer 6.1-15

Stríðsógnun og refsing 1Leitið skjóls, Benjamíns niðjar, flýið frá Jerúsalem. Þeytið hornið í Tekóa, reisið upp merki yfir Betkerem, því að ógæfa ógnar úr norðri, mikil eyðing. 2Þú líkist fögru [...]

Biblíulestur 14. apríl – Jer 5.14-31

14Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna: Af því að þeir hafa talað geri ég orð mín að eldi í munni þér og þetta fólk að eldiviðnum sem hann gleypir. 15Hyggið [...]

Fara efst