Biblíulestur – 13. september – Slm 106 1.1–12
Hallelúja.
Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins,
kunngjört allan lofstír hans?
Sælir eru þeir sem gæta réttarins,
sem iðka réttlæti alla tíma.
Minnstu mín, Drottinn,
er þú miskunnar lýð þínum,
vitja mín með hjálpræði þínu.
Lát mig sjá heill þinna útvöldu,
gleðjast með þjóð þinni
og fagna með eignarlýð þínum.
Vér höfum syndgað eins og feður vorir,
höfum breytt illa og óguðlega.
Feður vorir í Egyptalandi gáfu ekki gaum að undrum þínum,
minntust ekki mikillar miskunnar þinnar
en risu gegn Hinum hæsta við Sefhafið.
Hann bjargaði þeim vegna nafns síns
til að kunngjöra mátt sinn.
Hann hastaði á Sefhafið og það þornaði,
leiddi þá yfir djúpin eins og um eyðimörk.
Hann bjargaði þeim úr greipum hatursmanna þeirra,
leysti þá úr óvinahöndum.
Vötnin huldu ofsækjendur þeirra,
enginn þeirra komst undan.
Þá treystu þeir orðum hans
og sungu honum lof.
Biblíulestur á annan í páskum – Lúk 24.13-35
Vertu hjá okkur 13 Tveir þeirra fóru þann sama dag til þorps nokkurs sem er um sextíu skeiðrúm[ frá Jerúsalem og heitir Emmaus. 14 Þeir ræddu sín á milli um [...]
Biblíulestur á páskadag – Mrk 16.1-7
Hann er upp risinn 1 Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. 2 Og mjög árla [...]
Biblíulestur 11. apríl – Slm 89.39-53
39 En nú hefur þú hafnað þínum smurða, útskúfað honum í reiði þinni, 40 þú hefur rift sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt til jarðar. 41 Þú [...]
Biblíulestur á föstudaginn langa – Jóh 19.6-30
16 Þá seldi hann þeim hann í hendur og bauð að láta krossfesta hann. Jesús krossfestur Hermennirnir tóku þá við Jesú. 17 Og hann bar kross sinn og fór út [...]
Biblíulestur á skírdegi -Jóh 13.1-5; 34-35
Eftirdæmi 1 Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi að stund hans var komin og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, [...]
Biblíulestur 8. apríl – Jer 5.1-13
Orsök stríðsins 1Gangið um stræti Jerúsalem, litist um, spyrjist fyrir, leitið á torgunum hvort nokkur finnist, hvort þar sé aðeins einn sem stundar réttlæti og leitar sannleikans, og þá mun [...]