Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 14. október – 5Mós 23.25–24.9

Þegar þú kemur á kornakur í eigu annars manns mátt þú tína öx með hendinni en sigð mátt þú ekki sveifla á kornakri náunga þíns.
Nú gengur maður að eiga konu. Falli hún honum ekki í geð af því að hann finnur eitthvað fráhrindandi við hana skrifar hann henni skilnaðarbréf, fær henni og sendir hana af heimili sínu. Ef hún nú giftist öðrum manni þegar hún er farin af heimili hans og þeim manni fellur ekki heldur við hana, skrifar henni skilnaðarbréf, fær henni og sendir hana af heimili sínu, eða þá að seinni maðurinn deyr, má fyrri maður hennar, sem sendi hana frá sér, ekki taka hana aftur sér að eiginkonu því að hún er saurguð orðin. Slíkt mundi Drottni viðurstyggð og þú skalt ekki leiða sök yfir landið sem Drottinn, Guð þinn, fær þér að erfðahlut.
Þegar maður er nýkvæntur á hann ekki að gegna herþjónustu og engar slíkar kvaðir skulu á hann lagðar. Skal hann laus undan þeim í eitt ár til gagns fyrir heimili sitt og eiginkonu hans til ánægju.
Ekki skal taka handkvörn eða efri kvarnarstein að veði því að það væri að taka lífsbjörgina sjálfa að veði.
Verði uppvíst að maður hafi rænt einhverjum bræðra sinna, einhverjum Ísraelsmanni, og farið með hann eins og þræl og selt hann, þá skal sá ræningi deyja. Þú skalt uppræta hið illa þín á meðal.
Vertu varkár gagnvart holdsveiki. Gættu þess vandlega að fara eftir öllu sem Levítaprestarnir mæla fyrir um. Þið skuluð fara nákvæmlega eftir því sem ég hef gefið þeim fyrirmæli um. Minnstu þess hvernig Drottinn, Guð þinn, fór með Mirjam á leiðinni þegar þið fóruð út úr Egyptalandi.

Biblíulestur 26. október – Hlj 2.1-10

Drottinn hegnir Jerúsalem 1Hvílíkum sorta hefur Drottinn í reiði sinni hulið dótturina Síon. Frá himni varpaði hann til jarðar vegsemd Ísraels og minntist ekki fótskarar sinnar á degi reiði sinnar. [...]

Biblíulestur 24. október – Slm 105.16-25

16Þegar hann kallaði hungur yfir landið, svipti þá öllum birgðum brauðs,[ 17sendi hann mann á undan þeim. Jósef var seldur sem þræll, 18þeir særðu fætur hans með fjötrum, settu háls [...]

Biblíulestur 22. október – Hlj 1.1-11

Harmar Jerúsalem 1Ó, hversu einmana er nú borgin sem áður var svo mannmörg, orðin eins og ekkja, sú er voldug var meðal þjóðanna, drottningin meðal héraðanna orðin kvaðarkona. 2Hún grætur [...]

Fara efst