11 Þegar Pétur kom til sjálfs sín sagði hann: „Nú veit ég sannlega að Drottinn hefur sent engil sinn og bjargað mér úr hendi Heródesar og frá öllu því sem Gyðingar ætluðu sér.“
12 Og er hann hafði áttað sig gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar er kallast Markús. Þar höfðu margir safnast saman og voru á bæn. 13 Pétur knúði hurð fordyrisins og stúlka að nafni Róde gekk til dyra. 14 Þegar hún þekkti málróm Péturs gáði hún eigi fyrir fögnuði að ljúka upp fordyrinu heldur hljóp inn og sagði að Pétur stæði fyrir dyrum úti. 15Þau sem inni voru sögðu við hana: „Þú ert frávita.“ En hún stóð fast á því að svo væri sem hún sagði. „Það er þá engill hans,“ sögðu þau. 16 En Pétur hélt áfram að berja og þegar þau luku upp sáu þau hann og urðu furðu lostin. 17 Hann benti þeim með hendinni að vera hljóð, skýrði þeim frá hvernig Drottinn hafði leitt hann út úr fangelsinu og bað þau segja Jakobi og bræðrunum frá þessu. Síðan gekk hann út og fór á annan stað.
18 Þegar dagur rann kom ekki lítið fát á hermennina út af því hvað af Pétri væri orðið. 19Heródes lét leita hans en fann hann ekki. Hann lét þá yfirheyra varðmennina og bauð síðan að taka þá af lífi. Síðan fór hann úr Júdeu niður til Sesareu og sat þar um kyrrt.

Heródes deyr

20 Heródes hafði verið harla gramur Týrverjum og Sídoningum. Komu þeir saman á fund hans, fengu Blastus, stallara konungs, til fylgis við sig og báðust friðar en land þeirra var háð landi konungs um vistaföng.
21 Á tilsettum degi klæddist Heródes konungsskrúða, settist í hásæti og flutti þeim ræðu. 22En fólkið kallaði: „Guðs rödd er þetta en eigi manns.“ 23 Jafnskjótt laust engill Drottins hann sökum þess að hann gaf ekki Guði dýrðina. Hann var étinn upp af ormum og dó.
24 En orð Guðs efldist og breiddist út. 25 Barnabas og Sál sneru aftur frá Jerúsalem að loknu erindi sínu og tóku með sér Jóhannes, öðru nafni Markús.