Biblíulestur – 22. desember – Ef 5.21–6.9
Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. En eins og kirkjan lýtur Kristi, þannig lúti og konurnar eiginmönnum sínum í öllu.
Karlmenn, elskið konur ykkar eins og Kristur elskaði kirkjuna og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana til þess að helga hana með orðinu og hreinsa hana í vatnslauginni. Hann vildi leiða kirkjuna fram fyrir sig í dýrð án þess hún hefði blett eða hrukku né neitt slíkt. Heilög skyldi hún og lýtalaus. Þannig skulu eiginmennirnir elska konur sínar eins og eigin líkami. Sá sem elskar konu sína elskar sjálfan sig. Enginn hefur nokkru sinni hatað eigið hold heldur elur hann það og annast eins og Kristur kirkjuna því við erum limir á líkama hans.
„Þess vegna skal maður yfirgefa föður og móður og búa við eiginkonu sína og munu þau tvö verða einn maður.“ Þetta er mikill leyndardómur. Ég hef í huga Krist og kirkjuna. En sem sagt, hver og einn skal elska eiginkonu sína eins og sjálfan sig en konan beri lotningu fyrir manni sínum.
Börn, hlýðið foreldrum ykkar vegna Drottins því að það er rétt.
„Heiðra föður þinn og móður“ – það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti: „til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni“.
Og feður, reitið ekki börn ykkar til reiði heldur alið þau upp með aga og fræðslu um Drottin.
Þrælar, hlýðið jarðneskum húsbændum ykkar með lotningu og ótta af einlægni hjartans, eins og það væri Kristur. Ekki með augnaþjónustu eins og þeir er mönnum vilja þóknast heldur eins og þjónar Krists er gera vilja Guðs af heilum huga. Þjónið eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn. Þið vitið og sjálfir að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða sem hann gerir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður.
Og þið, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þið vitið að þeir eiga í himnunum sama Drottin og hann fer ekki í manngreinarálit.
Biblíulestur 3. janúar – 1Tím 1.1–17
Páll, postuli Krists Jesú, að boði Guðs frelsara vors og Krists Jesú, vonar vorrar, heilsar Tímóteusi, skilgetnu barni sínu í trúnni. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi [...]
Biblíulestur 2. janúar – Lúk 2.41–52
Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku Jesú með sér. Þau voru [...]
Biblíulestur – Nýársdagur – Lúk 2.21
Þegar átta dagar voru liðnir skyldi umskera hann og var hann látinn heita Jesús eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi.
Biblíulestur Gamlársdagur – Lk 13.6-9
6 Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. 7 Hann sagði þá við [...]
Biblíulestur 30. desember – Jak 1.2–18
2 Kæri söfnuður,[ álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss konar raunir. 3 Þið vitið að trúfesti ykkar vekur þolgæði 4 en þolgæðið á að birtast í því [...]
Biblíulestur 29. desember – Opb 19.1–10
1 Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Hann sagði: Hallelúja! Hjálpræðið, dýrðin og mátturinn kemur frá Guði vorum. 2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann [...]