Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – Þorláksmessa 23. desember – Matt 24.42–47

Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi. Verið þér og viðbúin því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi.
Hver er sá trúi og hyggni þjónn sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma? Sæll er sá þjónn er húsbóndinn finnur breyta svo er hann kemur. Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.

Biblíulestur 8. janúar – Slm 135.1–7

Hallelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins, sem standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors. Lofið Drottin því að Drottinn er góður, syngið nafni hans lof [...]

Biblíulestur 6. janúar – Matt 2.1–12

Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem og sögðu: „Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Við sáum stjörnu hans [...]

Biblíulestur 5. janúar – 1Tím 3.2–13

Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn. Hann á að vera maður sem veitir góða [...]

Fara efst