Biblíulestur – Aðfangadagur 24. desember – Lúk 2.1–14
En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.
En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.
Biblíulestur 15. janúar – Slm 135.8–21
Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur, sendi tákn og undur yfir þig, Egyptaland, gegn faraó og öllum þjónum hans. Hann felldi margar þjóðir og deyddi volduga konunga, Síhon, [...]
Biblíulestur 14. janúar – Matt 1.1–17
Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams. Abraham gat Ísak, Ísak gat Jakob, Jakob gat Júda og bræður hans. Júda gat Peres og Sara við Tamar, Peres gat Esrom, Esrom [...]
Biblíulestur 13. janúar – 1Tím 6.11–21
En þú, Guðs maður, forðast þú þetta en stunda réttlæti, guðrækni, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð. Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið sem þú varst kallaður til og [...]
Biblíulestur 12. janúar – 1Tím 5.21–6.10
Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla að þú gætir þessa án hleypidóms og gerir ekkert af vilfylgi. Ver ekki of fljótur til [...]
Biblíulestur 11. janúar – 1Tím 5.1–20
Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega heldur uppörva hann sem föður, yngri menn sem bræður, aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur með allri siðsemi. Heiðra ekkjur sem í [...]
Biblíulestur 10. janúar – 1Tím 4.6–16
Með því að brýna þetta fyrir söfnuðinum ert þú góður þjónn Krists Jesú og styrkist um leið af orði trúarinnar og þeim góða trúarlærdómi sem þú hefur fylgt. En hafna [...]