Biblíulestur – 8. nóvember – Slm 107.33–43
Hann gerir fljótin að eyðimörk
og uppsprettur að þurrum lendum,
frjósamt land að saltsléttu
sakir illsku íbúanna.
Hann gerir eyðimörk að vatnstjörnum
og þurrlendið að uppsprettum,
lætur hungraða setjast þar að
og reisir þeim borg til að búa í.
Þeir sá í akra, planta víngarða
og uppskera ríkulega.
Hann blessar þá og þeir margfaldast
og ekki fækkar hann fénaði þeirra.
En þótt þeim fækki og þeir hnígi niður
undan kúgun, böli og harmi
eys hann smán yfir höfðingja,
lætur þá villast í veglausri auðn,
en hinn snauða hefur hann upp úr eymd sinni
og gerir ættirnar sem hjarðir.
Hinir réttvísu sjá það og gleðjast
og allt illt lokar munni sínum.
Hver sem er vitur gefi gætur að þessu
og menn taki eftir náðarverkum Drottins.
Biblíulestur 2. sun í aðventu – Lk 21.25-33
Mannssonurinn kemur 25 Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. 26 Menn munu falla í öngvit af ótta [...]
Biblíulestur 4. desember – Slm 130 og Slm 131
Sálmur 130 1 Helgigönguljóð. Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn, 2Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína. 3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, [...]
Biblíulestur 3. desember – Jak 2.1–13
Mismunið ekki mönnum 1 Bræður mínir og systur,[ þið sem trúið á Jesú Krist, dýrðardrottin okkar, farið ekki í manngreinarálit. 2 Nú kemur maður inn í samkundu ykkar með gullhring [...]
Biblíulestur 2. desember – Mrk 2.23–3.6
2. kafli Drottinn hvíldardagsins 23 Svo bar við að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni. 24Farísearnir sögðu þá við hann: „Lít [...]
Biblíulestur 1. desember – Esk 20.11–17
11 Ég gaf þeim lög mín og boðaði þeim reglur mínar. Hver sá maður, sem framfylgir þeim, lifir vegna þeirra. 12 Ég gaf þeim einnig hvíldardaga mína sem tákn um [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Neh 13.15-22
15 Um þessar mundir sá ég fólk troða vínþrær á hvíldardegi í Júda. Einnig sá ég fólk hirða korn og klyfja asna. Það flutti einnig vín, vínber, fíkjur og alls [...]