Biblíulestur 2. janúar – Kól 1.12–23
þakkað föðurnum sem hefur gert ykkur fært að fá arfleifð heilagra í ljósinu. Hann hefur frelsað okkur frá valdi myrkursins og flutt okkur yfir í ríki síns elskaða sonar. Í honum eigum við endurlausnina, fyrirgefningu synda okkar.
Hann er ímynd hins ósýnilega Guðs,
frumburður allrar sköpunar.
Enda var allt skapað í honum
í himnunum og á jörðinni,
hið sýnilega og hið ósýnilega,
hásæti og herradómar, tignir og völd.
Allt er skapað fyrir hann og til hans.
Hann er fyrri en allt og allt á tilveru sína í honum.
Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar,
hann sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu.
Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa
og láta hann koma öllu í sátt við sig,
öllu bæði á jörðu og himnum,
með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Ykkur, sem voruð áður fráhverf Guði og óvinveitt í huga og vondum verkum, hefur hann nú sætt við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann lætur ykkur koma fram fyrir sig heilög og lýtalaus, óaðfinnanleg, ef þið standið stöðug í trúnni, á föstum grunni og hvikið ekki frá von þess fagnaðarerindis sem þið hafið heyrt og boðað hefur verið öllu sem skapað er í heiminum. Ég, Páll, er orðinn þjónn þess.
Biblíulestur 10. mars – Heb 4.1–16
Fyrirheitið um að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkurt ykkar verði til þess að dragast aftur úr. Fagnaðarerindið var okkur boðað eigi síður en þeim. [...]
Biblíulestur 9. mars – Heb 3.1–19
Helguðu vinir sem hafið fengið köllun til himinsins. Horfið til Jesú, postula og æðsta prests þeirrar trúar sem við játum. Hann var trúr Guði, er hafði skipað hann, eins og [...]
Biblíulestur 8. mars – Heb 2.1–18
Þess vegna ber okkur að gefa því enn betur gaum er við höfum heyrt svo að við berumst eigi afleiðis. Fyrst orðið, sem englar fluttu, hefur reynst stöðugt og þau [...]
Biblíulestur 7. mars – Heb 1.1–14
Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti [...]
Biblíulestur 6. mars – Matt 4.1–11
Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður. Þá kom djöfullinn [...]
Biblíulestur 5. mars – Slm 139.1–12
Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig, hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar. Hvort sem ég geng eða ligg, [...]