Biblíulestur 3. janúar – Slm 111.1–10
Hallelúja.
Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta
í félagi og söfnuði réttvísra.
Mikil eru verk Drottins,
verð íhugunar öllum er hafa unun af þeim.
Tign og vegsemd eru verk hans
og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
Hann hefur látið minnast dásemdarverka sinna,
náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
hann gaf þeim fæðu er óttast hann,
minnist sáttmála síns ævinlega.
Hann kunngjörði þjóð sinni mátt verka sinna
með því að gefa henni erfðahlut annarra þjóða.
Hann er trúr og réttlátur í öllum verkum sínum,
öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg,
standa óhagganleg um aldur og ævi,
framkvæmd í trúfesti og réttvísi.
Hann sendi lausn lýð sínum,
setti sáttmála sinn að eilífu,
heilagt og óttalegt er nafn hans.
Að óttast Drottin er upphaf speki,
þeir vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð.
Biblíulestur 16. mars – Heb 7.18–28
Hið fyrra boðorð er þar með ógilt af því að það var vanmáttugt og gagnslaust. Lögmálið gerði ekkert fullkomið. En nú höfum við öðlast betri von sem leiðir okkur nær [...]
Biblíulestur 15. mars – Heb 7.1–17
Melkísedek þessi var konungur í Salem og prestur Guðs Hins hæsta. Hann gekk á móti Abraham og blessaði hann þegar hann sneri heimleiðis eftir að hafa unnið sigur á konungunum. [...]
Biblíulestur 14. mars – Heb 6.1–20
Þess vegna skulum við sleppa byrjendafræðslunni um Krist og snúa okkur að fræðslunni fyrir lengra komna. Við förum ekki að byrja aftur á undirstöðuatriðum eins og að trúa á Guð [...]
Biblíulestur 13. mars – Matt 15.21–28
Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af [...]
Biblíulestur 12. mars – Slm 139.13–24
Þú hefur myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi. Ég lofa þig fyrir það að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel. Bein mín [...]
Biblíulestur 11. mars – Heb 5.1–14
Sérhver æðsti prestur er tekinn úr flokki manna og settur í þágu manna til að þjóna frammi fyrir Guði og bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir. Hann getur verið [...]