Biblíulestur 5. janúar – Kól 1.24–2.5
Nú er ég glaður í þjáningum mínum ykkar vegna og uppfylli með þjáningum líkama míns það sem enn vantar á þjáningar Krists til heilla fyrir líkama hans, kirkjuna. Hennar þjónn er ég orðinn og hef það hlutverk að boða Guðs orð óskorað, leyndardóminn sem hefur verið hulinn frá upphafi tíða og kynslóða en hefur nú verið opinberaður Guðs heilögu. Guð vildi opinbera þeim hvílíkan dýrðarríkdóm heiðnar þjóðir eiga í þessum leyndardómi sem er Kristur meðal ykkar, von dýrðarinnar.
Hann boða ég, áminni og fræði hvern mann með allri speki að ég megi leiða alla fram fullkomna í Kristi. Að þessu strita ég og stríði með þeim mætti sem Kristur lætur kröftuglega verka í mér.
Ég vil að þið vitið hversu hörð barátta mín er vegna ykkar og þeirra í Laódíkeu og allra þeirra sem hafa ekki séð mig sjálfan. Mig langar að allir uppörvist í hjörtum sínum, sameinist í kærleika og öðlist fulla sannfæringu og innsýn og geti gjörþekkt leyndardóm Guðs sem er Kristur. En í honum eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.
Þetta segi ég til þess að enginn blekki ykkur með fagurgala. Ég er hjá ykkur í andanum þótt ég sé líkamlega fjarlægur og horfi með fögnuði á góða skipan hjá ykkur og festu ykkar í trúnni á Krist.
Biblíulestur 28. mars – Lúk 1.1–25
Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gerst hafa meðal okkar, samkvæmt því sem þeir menn hafa flutt okkur er frá öndverðu voru sjónarvottar og [...]
Biblíulestur 27. mars – Jóh 6.1–15
Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn. Mikill fjöldi manna fylgdi honum því þeir sáu þau tákn er hann gerði á sjúku fólki. Þá fór Jesús upp á [...]
Biblíulestur 26. mars – Okv 31.10–31
Dugmikla konu, hver hlýtur hana? Hún er miklu dýrmætari en perlur. Hjarta manns hennar treystir henni og ekki er lát á hagsæld hans. Hún gerir honum gott og ekkert illt [...]
Biblíulestur Boðunardagur Maríu – Lúk 1.26–38
En í sjötta mánuði sendi Guð Gabríel engil til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, til meyjar er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs en mærin hét [...]
Biblíulestur 24. mars – 2Tím 4.6–22
Nú er svo komið að mér verður fórnfært og tíminn er kominn að ég taki mig upp. Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna. Og nú [...]
Biblíulestur 23. mars – 2Tím 3.10–4.5
En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum og Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi [...]