Biblíulestur 15. febrúar – Mrk 8.31–38
Þá tók Jesús að kenna þeim: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa eftir þrjá daga.“ Þetta sagði Jesús berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann. Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: „Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það sem Guðs er heldur það sem manna er.“
Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga því. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð föður síns með heilögum englum mun hann blygðast sín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig hjá þessari ótrúu og syndugu kynslóð.“
Biblíulestur 9. desember – Mík 7.1–6
Vei mér. Fyrir mér er komið eins og þegar ávöxtum hefur verið safnað, og leitað er að eftirhreytum vínberjanna. Enginn klasi er eftir til að neyta, engar vorfíkjur sem hugnast [...]
Biblíulestur 8. desember – Mík 6.1–16
Heyrið það sem Drottinn segir: Flyt fjöllunum mál þitt, lát hæðirnar heyra raust þína. Fjöll, hlýðið á kæru Drottins, leggið við hlustir, undirstöður jarðarinnar, því að Drottinn flytur mál gegn [...]
Biblíulestur 7. desember – Mík 5.1–14
En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. Því verður þjóðin [...]
Biblíulestur 6. desember – Mík 4.9–14
En hví hljóðar þú hástöfum? Áttu þér engan konung? Eru ráðgjafar þínir á burt? Er það vegna þess sem þú engist sem jóðsjúk kona? Þú skalt engjast og hljóða, dóttirin [...]
Biblíulestur 5. desember – Mík 3.9–4.8
Heyrið þetta, leiðtogar Jakobs ættar, höfðingjar Ísraels ættar, þér sem hafið andstyggð á réttlæti og hallið hverju því sem rétt er, þér sem byggið Síon með blóði og Jerúsalem með [...]
Biblíulestur Annar sunnudagur í aðventu – Mrk 13.31–37
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema [...]